Le Pen fagnar sögulegum sigri – flokkur hennar styrkir stöðu sína fyrir forsetakjörið

Þjóðfylking Marine Le Pen og bandamenn hennar hafa tryggt sér nægilega marga fulltrúa til að mynda í fyrsta sinn eigin þingflokk í öldungadeild franska þingsins. Árangurinn kemur þegar Le Pen mælist með afgerandi forskot í könnunum fyrir fyrri umferð forsetakosninganna vorið 2027.

Þjóðfylkingin, Rassemblement national (RN), og bandamenn hennar verða samanlagt með 14 öldungadeildarþingmenn eftir kosningarnar sunnudaginn 27. september, samkvæmt The Guardian.

Le Pen lýsti niðurstöðunni sem „sögulegum sigri“ og sagði stofnun þingflokks í öldungadeildinni marka mikilvæg tímamót.

„Úrslitin hafa farið fram úr væntingum okkar,“ sagði hún í yfirlýsingu eftir kosningarnar, að því er Reuters greinir frá.

Jordan Bardella, formaður Þjóðfylkingarinnar, staðfesti að þingmenn flokksins myndu starfa í sameiginlegum þingflokki með bandamönnum sínum í UDR, flokki Érics Ciotti.

Tíu þingmenn þarf til að mynda þingflokk í öldungadeildinni. Með því öðlast flokkurinn aukin réttindi við þingstörf, meðal annars möguleika á að óska eftir atkvæðagreiðslum. Árangurinn styrkir því stöðu Þjóðfylkingarinnar innan stofnunar þar sem hún hefur hingað til haft fáa fulltrúa.

Kosið var um 178 af 348 sætum öldungadeildarinnar. Kosningarnar eru óbeinar: þingmenn og kjörnir fulltrúar sveitarfélaga velja öldungadeildarþingmenn, en almenningur kýs þá ekki beint. Niðurstaðan endurspeglar því einnig stöðu flokkanna meðal kjörinna fulltrúa víðs vegar um Frakkland.

Mælist með allt að 36 prósenta fylgi

Samhliða þessum árangri stendur Le Pen sterkt í könnunum fyrir forsetakosningarnar. Í könnun Toluna Harris Interactive fyrir RTL og M6, sem birt var 14. september, mældist hún með 33 til 36 prósenta fylgi í fyrri umferð, eftir því hvaða frambjóðendur voru í boði.

Samkvæmt umfjöllun RTL hélt hún skýru forskoti þótt fylgi hennar hefði lækkað lítillega frá fyrri mælingu.

Baráttan um hitt sætið í síðari umferðinni var mun jafnari. Jean-Luc Mélenchon, leiðtogi vinstriflokksins Óbugaðs Frakklands, og Édouard Philippe, fyrrverandi forsætisráðherra, skiptust á um að standa betur að vígi eftir samsetningu framboðanna. Því liggur ekki fyrir hver yrði mótherji Le Pen kæmist hún áfram.

Le Pen komst í síðari umferð forsetakosninganna bæði 2017 og 2022 en tapaði í bæði skiptin fyrir Emmanuel Macron. Nú nálgast nýjar kosningar á sama tíma og flokkur hennar hefur náð nýjum áfanga í öldungadeildinni og hún sjálf heldur forystu í könnunum fyrir fyrri umferð.