Látum ekki myrkrið sigra – Styðjum Pál Vilhjálmsson blaðamann og kennara

Samtökin 78 hafa kært Pál Vilhjálmsson blaðamann fyrir hatursorðræðu, vegna þess að hann er ekki sammála þeim um kennsluefni í kynfræðslu fyrir börn í grunnskólum landsins. Hann hefur skrifað á blog.is um málið.

Meðal annars gengur fræðslan út á að kornungum börnum er kennt að fitla við sig sjálf, setja fingur í endaop líkamans m.m. Er um mjög ógeðfelld afskipti af einkalífi ókynþroska barna að ræða. Páll Vilhjálmsson er sjálfur þriggja barna faðir og hann segir það skyldu foreldra og annarra fullorðinna að vernda börnin ekki síst gegn ýmsum illa gerðum einstaklingum með barnagirnd.

Að mati Samtakanna 78 er gagnrýni á klámfengið kennsluefni fyrir börn hatursorðræða og fyrir það á að dæma Pál Vilhjálmssonar í júlí. Refsing getur auk sekta og málskostnaðar orðið allt að tveggja ára fangelsi.

Mjög margir Íslendingar eru sammála Páli, þótt allir þori ekki að taka blað frá munni enda má þá búast við kæru frá Samtökunum 78. Verði Páll dæmdur fyrir hatursorðræðu er málfrelsið á Íslandi í hættu statt. Næst gæti það verið þú, granni þinn eða fjölskyldumeðlimur sem fær kæru fyrir hatursorðræðu.

Styðjum Pál Vilhjálmsson í baráttunni gegn því ofurefli sem misnotar fé skattgreiðenda til að ryðja braut ritskoðunar á Íslandi. Landsmenn mega aldrei láta ókjörin einkafélagasamtök fá stöðu ráðuneytis í samfélaginu.

Greiða má fjárframlög inn á reikning Páls:

Bankareikningur 0111-15-630300

kt. 1510602859

Fara efst á síðu