Landsréttur sýknar Pál Vilhjálmsson blaðamann eina ferðina enn í byrlunarmálinu

Samkvæmt frétt Mbl. þá sýknaði Landsréttur í dag Pál Vilhjálmsson, pistlahöfund og fv. blaðamann, af kröfum Aðalsteins Kjartanssonar, blaðamanns á Heimildinni, um ómerkingu fjölmargra ummæla og greiðslu miskabóta vegna færslna sem birtust á bloggsíðu Páls á trímabilinu frá apríl 2022 til apríl 2023 í svo kölluðu byrlunarmáli. Niðurstöður Landsréttar er fagnaðarefni fyrir málfrelsisunnendur á Íslandi.

Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur dæmt ummæli Páls ómerk, þannig að Landsréttur ógilti niðurstöðu Héraðsdóms. Páll fullyrti í færslunum meðal annars að Aðalsteinn hefði átt aðild að byrlun og þjófnaði á síma Páls Steingrímssonar skipstjóra í tengslum við umfjöllun um fyrirtækið Samherja.

Aðalsteinn krafðist ómerkingar ummælanna og 450 þúsund króna miskabætur sem hann fékk í héraði. Páll áfrýjaði þeim dómi til Landsréttar sem hefur nú dæmt honumm í vil.

Lands­rétt­ur komst að þeirri niður­stöðu að þótt um­mæli Páls væru bein­skeytt og óvæg­in yrði að líta til þess að Aðal­steinn hefði á þeim tíma haft stöðu sak­born­ings hjá lög­reglu vegna rann­sókn­ar á mögu­legri aðild að brot­um gegn friðhelgi einka­lífs. Fullyrðingar Páls gengu ekki svolangt að réttlæta ætti inngrip í tjáningarfrelsi hans.

Landsréttur snéri einnig við dómi héraðsdóms á síðasta árí og sýknaði Pál í meiyrðamáli sem Þórður Snær Júlíusson, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Arn­ar Þór Ing­ólfs­son blaðamaður höfðuðu gegn Páli.

Þjóðólfur átti nýlega viðtal við Pál Vilhjálmsson um væntanlegan dóm í öðru máli, máli Samtakanna 78, sem kærðu Pál fyrir hatursorðræðu vegna þess að hann telur ekki við hæfi barna að fá kennsluefni sem Samtökin 78 útvega í kyn- og kynlífsfræðslu grunnskóla Reykjavíkur meðal annars um BDSM-kynlíf sem stendur fyrir drottnun, undirgefni, kvalarlosta og píningarnautn. Með skrifum sínum tók Páll upp hanskann fyrir saklaus ókynþroska börn sem verið er að útsetja fyrir námsefni sem þau hafa ekki þroska til að tileinka sér. Þá heldur Páll því fram að kynin séu aðeins tvö og ekki sé hægt að fæðast í röngum líkama og því rangt að vera að halda slíku fram við börn í grunnskólum sem gera þau óöruggari með sig sjálf, þegar kemur að kynþroskaskeiðinu.

Búist er við dómi Héraðsdóms í því máli fljótlega og mun Þjóðólfur greina frá því, en saksóknari telur Pál Vilhjálmsson vera einn af ,,miðaldra körlum sem brjálast við lyklaborðið“ sem verði að hljóta makleg málagjöld, fjárútgjöld og fangelsisvist.

Fara efst á síðu