Kvennahreyfing á villigötum

Mynd gerð af gervigreind

Um 300 konur og fáeinir karlar komu saman á fimmtudag fyrir utan dómshúsið í Plymouth í Massachusetts til að mynda hjörtu með höndunum og sýna Lindsay Clancy, 36 ára, stuðning. Hún er ákærð fyrir morð eftir að hafa kyrkt þrjú ung börn sín.

– Enginn tekur okkur alvarlega, segir ein kvennanna sem tók þátt í mótmælunum.

Margir þátttakenda klæddust bleiku og báru skilaboð á borð við „Trúið“, „Hún þurfti hjálp“ og „Friður fyrir Lindsay“.

Nokkrar af þeim hundruðum kvenna sem voru fyrir utan dómshúsið sögðust vilja vekja athygli á því hvernig komið væri fram við konur innan geðheilbrigðiskerfisins, að því er The Guardian/AP greinir frá.

– Konum er vísað frá, þær vanræktar og hunsaðar þegar við látum í okkur heyra. Við erum hræddar vegna þess að enginn tekur okkur alvarlega, sagði April Vincent, 52 ára lögfræðiaðstoðarmaður.

Clancy banaði börnum sínum, Cora, Dawson og Callan Clancy, 24. janúar 2023 eftir að hafa lokkað þau niður í kjallara. Börnin voru á aldrinum átta mánaða til fimm ára. Að því loknu stökk hún út um glugga á efri hæð hússins. Hún er enn lömuð frá mitti og niður.

Saksóknarar halda því fram að Clancy hafi skipulagt morðin og séð til þess að eiginmaður hennar færi að heiman með því að senda hann út til að kaupa lyf handa einu barnanna og sækja kvöldmat fyrir fjölskylduna.

Verjendur draga ekki í efa að hún hafi banað börnunum. Lögmaðurinn Kevin Reddington segir að hún hafi þjáðst af geðrofi eftir fæðingu og sé einnig með geðhvarfasýki. Verjendur telja því að ekki sé hægt að gera hana refsiábyrga. Clancy hefur lýst sig saklausa af morðákærunum.

Við réttarhöldin á fimmtudag sagði sjúkrahúspresturinn Sheila Cavanaugh, sem verjendur kölluðu til vitnis, frá einu því fyrsta sem Clancy sagði við hana á sjúkrahúsinu.

– Hún sagði við mig, á meðan ég hélt í hönd hennar til að hugga hana: „Ég er svo fegin að börnin mín eru örugg.“

Þegar Reddington birtist fyrir utan dómshúsið tóku þátttakendur að klappa. Undir lok samkomunnar mynduðu þeir hring, fóru með Faðirvorið, lyftu höndunum og mynduðu hjörtu með þeim, að sögn AP.