Íris Erlingsdóttir skrifar:
Það er ótrúlegt hve margir, sem virðast hafa óbrenglaða heimsmynd og raunveruleikaskyn, segjast vera femínistar og trúa staðfastlega að femínistahreyfingin hafi frelsað konur og bætt líf þeirra.
Fátt er fjarlægara frá sannleikanum. Femínismi verndar hagsmuni kvenna eins og refur verndar hænsnahús.
Fá samtök eru kvenfjandsamlegri en samtök femínista, sem hafa eindregið stutt „rétt“ karlmanna til að keppa gegn konum í íþróttum og „rétt“ karla til að fletta sig klæðum fyrir framan stúlkur og konur á almenningssalernum og -sturtum og „rétt“ til að vera vistaðir í kvennafangelsum.
Stjórn Kvenréttindafélags Íslands ,,samþykkti einróma umsókn Trans Íslands að gerast aðildarfélagi að Kvenréttindafélaginu” árið 2021. “Jafnrétti verður aldrei náð ef jafnrétti er ekki fyrir okkur öll og kvenfrelsi náum við aðeins í sameiningu.“ ,,Kvenfrelsi” – fyrir karlmenn!
Flestir karlar sem óska eftir afplánun í kvennafangelsi eru dæmdir kynferðisafbrotamenn og eftir flutningana hafa nokkrir nauðgað kvensamföngum sínum, sem voru fórnarlömb kynferðisofbeldis. Og – ótrúlegt en satt – fangarnir ,,skiptu um kyn“ aftur, yfir í karlkyn, eftir að hafa setið af sér refsivistina í kvennafangelsunum!

Öll samtök femínista, án undantekningar, telja að karlar eigi að hafa fullan aðgang að kvennaíþróttum, klósettum, búningsklefum, sturtum og kvenrýmum, svo framarlega sem þeir mæta í pilsi.
Þessi hræsni er viðbjóðsleg. Hver getur fullyrt að femínismi verndi réttindi kvenna og hjálpi konum? Femínísk samtök styðja ekki konur, heldur ala í þeim hatur á karlmönnum og innræta þeim að forðast eða yfirgefa hjónaband, fjölskyldu og nauðsynlega vernd karlmanna. Guð forði konum frá að dreyma um karlkyns elskhuga, eiginmenn og börn; nei, framtíðarfantasían er að vera bitur, óhamingjusöm og einmana og draumaprinsinn er stígvélaði kötturinn.
Femínismi er og hefur alltaf verið kvenfjandsamleg, vinstrisinnuð hreyfing, sprottin úr eitruðu fræi marxismans, og allt, sem vinstri öfl snerta, eyðileggst. Það er engin undantekning frá þessari reglu: menntun, vísindi, listir, bókmenntir, herir, íþróttir, íslenska ríkið.
Aðeins fífl faðma femínisma og velja vinstri öfl.

Íris Erlingsdóttir
Höfundur er fjölmiðlafræðingur