Það vantaði eiginlega bara Salvador Dalí á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í ræðustólnum, heimurinn í rúst og yfir salnum svífur feitur fíll á svo löngum og mjóum fótum að hann nær aldrei sambandi við jörðina. Á bakinu ber hann utanríkisstefnuna. Í rananum heldur hann á friðardúfu sem bíður eftir öryggisvottun.
Frú ráðherra hefur tekið til máls. Þeir leiðtogar sem neita að setjast niður og semja um réttlátan og varanlegan frið eru, að hennar sögn, siðferðilegir hugleysingjar.
Þar komu loksins hin skýru fyrirmæli. Núna þarf bara að finna samningaborðið.
Engin útfærð tillaga kom fram í ræðunni um hvernig koma eigi stríðsaðilum í Úkraínu að því. Borðið er þarna einhvers staðar í siðferðilegri fjarlægð, fullbúið með nafnspjöldum, vatnskönnum og engum stólum. Allir eru samt hvattir til að setjast.
Þetta er utanríkispólitík eins og Dalí hefði málað hana eftir að hafa sofnað yfir fundargerð frá Brussel.
Ég verð líka að viðurkenna að þegar Þorgerður Katrín tekur að úthluta heiminum einkunnum í siðferði heyri ég dauft hljóð úr íslenskri fortíð.
Þar rúllar kúlan á fullri ferð.
Viðurnefnið „kúlulánadrottningin“, sem gagnrýnendur hennar hafa notað, er kannski ekki sá titill sem prentaður er á nafnspjaldið hjá Sameinuðu þjóðunum. Það myndi þó gefa kynningunni annan blæ:
Hennar hátign kúlulánadrottningin, sérstakur erindreki ábyrgðar og alþjóðlegur prófdómari í siðferðilegu hugrekki.
Þetta er auðvitað háðsmynd. En hún hittir vandann á höfuðið við hátíðlegar siðferðisræður: áheyrendur mæta stundum með minni.
Og íslenska fjármálahrunið var heldur óheppilegt námskeið í ábyrgð. Venjulegt fólk lærði að ábyrgð væri það sem héldi fyrir því vöku. Í glæsilegri kennslustofu viðskiptalífsins lærðu menn hins vegar að ábyrgð væri eins og hættulegur úrgangur: best að setja hana í einkahlutafélag og passa að hún kæmist ekki í snertingu við eigendurna.
Á Dalí-málverkinu mínu er kona neðst í horninu með innkaupapoka og greiðsluseðil. Fyrir ofan hana svifur risavaxin kúla með kórónu. Konan væri að reyna að láta launin endast út mánuðinn. Kúlan flytur erindi um að allir verða að axla ábyrgð.
Ekki snerta listaverkið mitt. Það er í einkaeigu.
Í ræðunni er líka lofað frelsi markaðarins og sköpunargáfu mannsins: hæfileikanum til að ímynda sér eitthvað sem ekki er til og koma því í framkvæmd.
Þarna gætu Íslendingar úr hruninu lagt hönd á hjarta. Við höfum séð hvað gerist þegar fjármálaheimurinn tekur ímyndunaraflið fram yfir reikningsskilin.
Á sýningunni minni fær sá kafli sérherbergi. Þar hangir bráðnandi vasareiknir á íslensku eldhúsborði. Hann getur reiknað upphæð bónusa en fer í listrænt uppnám þegar spurt er hver á að bera tapið.
Safnvörðurinn útskýrir að listaverkið heitir Ábyrgð.
Gestir mega hins vegar ekki spyrja hvers vegna það sé tómt að aftan.
En aftur að friðinum, sem bíður enn frammi á gangi.
Þorgerður Katrín segir réttilega í ræðunni að reglur megi ekki aðeins gilda þegar þær henta okkur. Gott. Þá hlýtur mælikvarðinn um friðarviðræður líka að gilda þegar viðmælandinn er ógeðfelldur, hættulegur eða situr í Kreml.
Það er einmitt vandinn við friðarviðræður. Það þarf yfirleitt að bjóða einhverjum sem maður hefði sleppt í matarboði.
Ef aðeins má semja við sómafólk er hægt að halda mjög indæla friðarráðstefnu. Allir eru sammála, maturinn góður og stríðið heldur áfram annars staðar.
Á mínu málverki situr friðardúfan við samningaborðið. Hún er með gestapassa, hefur lokið skyldunámskeiði í sameiginlegum gildum og bíður eftir að einhver svari símanum.
Fíllinn getur ekki hjálpað. Hann er svo hátt uppi að hann heldur að skotgrafirnar séu saumfar í teppinu.
Ég ætlast ekki til þess að Þorgerður Katrín stöðvi stríð með því að hringja eitt símtal. En þegar ráðherra kallar aðra siðferðilega hugleysingja fyrir að semja ekki um frið má spyrja hvaða samtal hún leggur sjálf til, hvaða leið hún sér og hvaða pólitísku áhættu hún sé reiðubúin að taka.
Annars verður hugrekkið undarlega hættulaust. Það stendur í loftkældum sal og skammar þá sem vantar á fundinn.
Á meðan bíður fólkið sem þarf á friðinum að halda. Það hefur takmarkað gagn af því að fá siðferðilega yfirburði senda í fínni öskju. Það vantar skjól, mat og að sprengingarnar hætti.
Og heima á Íslandi situr einhver yfir reikningunum sínum og hlustar á kúlulánadrottninguna tala um ábyrgð.
Sá áheyrandi þarf ekki Salvador Dalí til að útskýra súrrealismann í ræðu drottningarinnar.
Hann hefur þegar fengið reikninginn.
