Ráðamenn RÚV sem sumir eru hatrammir andstæðingar repúblikana og forseta Bandaríkjanna fóru að sjálfsögðu úr límingunum þegar Trump sendi frá sér kort af Bandaríkjunum, Kanada, Grænlandi og Íslandi í fánalitum Bandaríkjanna. Eftir það eru biðraðir „stórmenna” meginlandsins ásamt íslensku valkyrjunum að fjölmiðlum til að auglýsa sjálfa sig sem sleggju gegn ósvífni forsetans. Það má alltaf reyna að fá einhver atkvæði út á það. Það gæti hins vegar verið tvíbent vopn, þar sem lýðræðið er að rísa upp á meginlandinu eins og með kjöri AfD í Saxlandi Anhalt og væntanlegu kjöri Le Pen sem Frakklandsforseta næsta ár.
Auglýst ferð Kristrúnar Frostadóttur til Bandaríkjanna til að skamma Trump og slá sig til riddara glóbalizmans er verklegt próf í skóla ungra alþjóðlegra leiðtoga sem haldið er úti í Davos. Það er þriggja ára nám og ef til vill verður skammarferð hennar lokaverkefni fyrsta árs. Fjarvera og einbeitingarskortur forsætisráðherrans á íslenskum málum stafar vegna metnaðar hennar að verða útskrifuð úr Davos skólanum með góðri einkunn sem tryggir henni vel borgaða stöðu í neti alþjóðavæðingarinnar um allan heim. Hún fær sjálfsagt háa einkunn fyrir það eitt ef Trump veitir henni viðtal.
Kristrún notar embættið til að pönkast á lýðræðislega kjörnum forseta Bandaríkjanna, það er áhættulaust í veröld vókismans, þar sem Trump er útskýrður sem djöfull í mannsmynd sem er skilgreining heilagastríðsmanna íslam. Íslenska ríkisstjórnin er ekki aðeins umleikin blóðugum úkraínskum fánum heldur einnig blóðugum fánum Hamas. Í báðum tilvikum kaupa valkyrjurnar sér athygli alþjóðasinna með peningum sem sóttir eru í vasa íslenskra skattgreiðenda og fluttir yfir í botnlausa vasa spilltra valdhafa.
Kostnaður íslenskra skattgreiðenda fyrir persónulegt valdapot valkyrjanna á erlendum vettvangi þarf að stöðva eins fljótt og hægt er. Ríkisféhirðir þarf að fara vandlega yfir allar utanlandsferðir og skilgreina hvaða kostnaður tilheyrir störfum á vegum ríkisins og hvaða kostnaður er þar fyrir utan og senda dömunum reikninginn.
Það er með öllu ótækt að sjá valkyrjurnar notfæra sér bresti íslenskrar stjórnsýslu og innleiða starfshætti þeirra sem ollu fjármálahruninu 2008 inn í stjórnarráðið 2026. Bæði utanríkisráðherrann og forsætisráðherrann þverbrjóta lög um stjórnarráðið, stjórnarskrá og forsetaúrskurði. Hér þarf þjóðin að taka til hendi og fylgja eftir rannsóknarskýrslu Alþingis í kjölfar bankahrunsins og innleiða stjórnskipan sem útilokar fólk með einræðissál og siðleysi í viðskiputn að taka yfir völd ríkisins.
Björn Bjarnason kallar það réttilega smjörklípu að uppistandið með grín Bandaríkjaforseta við fyrrum fjármálaráðherra hafi verið þyrlað upp sem ryki til að myrka áframhaldandi umræðu um ESB sem ekki þolir dagsins ljós. Bréf utanríkisráðherrans til ESB um að Ísland haldi áfram stöðu sem umsóknarríki er sent í umboðsleysi, þar sem ráðherrann hefur tekið sér einræðisvald til að tala fyrir hönd Íslands. Þá umræðu vilja ekki valkyrjurnar taka, þær fylgja skrifræði ESB sem samþykkir ekki nei.
Skammarferð forsætisráðherrans til Bandaríkjanna og auglýstur fundur með Trump er af sama meiði. Núna verða fundin fleiri atriði til að þyrla upp ryki og mynda varnarskjöld um ósigur ríkisstjórnarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Þjóðin mun ekki blekkjast. Þróunin á Íslandi er sú sama og alls staðar annars staðar. Sífellt fleiri gera sér grein fyrir því að úthýsing á fullveldi og sjálfstæði hefur ekkert með lýðræðið að gera heldur er verkfæri glóbalizmans til að ná völdum viðkomandi ríkja.
Vonandi hverfa Viðreisn og Samfylkingin út af þingi í næstu kosningum.
