Krefjast þess að ESB hætti að styðja Alþjóðlegu Ólympíuleikina

Rússahatarar Evrópusambandsins gera allt til að útiloka Rússland sem ríki á jörðunni frá eðlilegum samskiptum við aðra. Meðal annars var Rússlandi og Hvíta-Rússlandi bannað að taka þátt í Ólympíuleikjunum sem hafa það sem auðkenni að ekki eigi að blanda saman íþróttum og pólitík. Núna hafa Bandaríkjamenn komið vitinu fyrir í Alþjóða Ólympíunefndina sem leyfir Rússlandi og Hvíta-Rússlandi að taka þátt í Sumarleikjunum í Los Angeles 2028.

En þeir sem lifa enn á tíma Sovétríkjanna eins og nýnazistar og ESB-stjórnmálamenn til dæmis í Eistlandi lýsa yfir furðu sinni á því að íþróttir séu leið friðar en ekki stríðs. Heidy Purga, menningarmálaráðherra Eistlands, vitnaði í yfirlýsingu Eistlands um að Evrópusambandið ætti að stöðva fjárveitingar til Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) og annarra alþjóðlegra íþróttasamtaka sem leyfa Rússlandi og Hvíta-Rússlandi að snúa aftur til alþjóðlegra íþróttakeppna. Yfirlýsingin var lögð fram að frumkvæði Eistlands og studd af fleiri ríkjum: 

„Við núverandi öryggisaðstæður er ómögulegt að skilja ákvarðanir sem miða að því að hleypa árásarríkjum aftur inn í alþjóðlegt íþróttasamfélag eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan stríðið í Úkraínu geisar áfram og fólk þjáist getum við ekki leyft að íþróttir séu notaðar til að gera þetta ástand eðlilegt. Íþróttir eru ekki hlutlausar gagnvart gildum – þær bera ávallt með sér skilaboð. Spurningin er hvort við stöndum vörð um grundvallargildi okkar eða gefum þau upp.“

Ummælin voru birt í tengslum við yfirlýsingu Eistlands um að Alþjóðlega Ólympíunefndin og önnur íþróttasamtök sem opna aftur fyrir þátttöku Rússlands og Hvíta-Rússlands ættu ekki að njóta styrkja frá Evrópusambandinu. Yfirlýsingunni var beint til Glenn Micallef, framkvæmdastjóra ESB sem fer meðal annars með málefni íþrótta.  

Tillagan tekur einnig til annarra alþjóðlegra íþróttasambanda, meðal annars Alþjóðaskylmingasambandsins (FIE) og World Aquatics. Utanríkisráðherra Eistlands, Margus Tsahkna, gagnrýndi einnig ákvörðun Alþjóðalegu Ólympíunefndarinnar og sagði að íþróttir og stríð yrðu ekki aðskilin.