Kosningakæra vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst var send úrskurðarnefnd kosningamála í dag

Lögð var fram í dag kosningakæra vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um endurupptöku aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið 29. ágúst. Þess er aðallega krafist að atkvæðagreiðslan verði lýst ógild. Í kærunni er því meðal annars haldið fram að utanríkisráðherra hafi skort valdheimildir til að leiða málið og að alvarlegir ólögmætisannmarkar séu á aðdraganda og undirbúningi atkvæðagreiðslunnar.

Þjóðaratkvæðagreiðslan um endurupptöku aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið hefur verið kærð til úrskurðarnefndar kosningamála.

Logi Kjartansson lögfræðingur / cand. jur. sendir kæruna fyrir hönd Þrastar Jónssonar, Sigfúsar Aðalsteinssonar og fleiri kjósenda og íslenskra ríkisborgara. Kæran er dagsett 21. ágúst 2026 og lýtur að þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fyrirhuguð er 29. ágúst.

Kröfugerðin er afdráttarlaus. Aðalkrafa kærenda er að þjóðaratkvæðagreiðslan verði lýst ógild en til vara að úrskurðarnefndin viðurkenni ólögmæti hennar og þar með ógildanleika.

Í kærunni segir:

„Kröfur kærenda eru aðallega þær að kosningar þær sem fólgnar eru í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst 2026 verði að lögum lýstar ógildar en til vara að viðurkennt verði ólögmæti þeirra og þar með ógildanleiki.“

Segja utanríkisráðherra hafa skort vald

Ein meginmálsástæða kærunnar er sú að utanríkisráðherra hafi að mati kærenda ekki verið valdbær til þess að leiða málið með þeim hætti sem gert hefur verið.

Kærendur byggja á því að samkvæmt gildandi stjórnlögum og forsetaúrskurðum heyri málefni sem varða stjórnskipan lýðveldisins og Stjórnarráð Íslands í heild undir forsætisráðherra.

Því er haldið fram að utanríkisráðherra hafi farið út fyrir valdsvið sitt og að um svokallaða „valdþurrð“ sé að ræða. Kærendur telja þetta einn alvarlegasta ólögmætisannmarka málsins.

Í ítarlegri rökstuðningi kærunnar er vísað til forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna og því haldið fram að forsætisráðuneytið, en ekki utanríkisráðuneytið, fari með málefni er varða stjórnskipan lýðveldisins og Stjórnarráðið í heild.

Sex meginatriði lögð til grundvallar

Kæran er 14 blaðsíður og þar eru nokkur atriði lögð til grundvallar kröfunni um ógildingu. Auk ætlaðrar valdþurrðar utanríkisráðherra telja kærendur að markmið ESB-vegferðarinnar hafi ekki verið skilgreind með nægilega skýrum hætti.

Þeir gera jafnframt alvarlegar athugasemdir við að um 300 skjöl tengd málinu hafi samkvæmt kærunni verið útilokuð frá almennum aðgangi. Kærendur telja upplýsingaskortinn hafa áhrif á möguleika kjósenda til að taka upplýsta ákvörðun.

Þá er því haldið fram að verulegur vafi leiki á því hvort sú vegferð sem hafin hefur verið í átt að endurupptöku aðildarviðræðna hafi verið heimil án breytinga á stjórnarskrá.

Kærendur gera einnig athugasemdir við upplýsingamiðlun utanríkisráðuneytisins vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar og telja að ráðuneytið hafi farið inn á verksvið Landskjörstjórnar.

RÚV og ESB-styrkir einnig hluti kærunnar

Athygli vekur að fjárframlög úr sjóðum Evrópusambandsins til RÚV og verkefna tengdum ríkisfjölmiðlinum eru einnig sérstaklega nefnd í kærunni.

Kærendur telja að styrkveitingar til RÚV geti haft áhrif á það hlutleysi og þann áreiðanleika sem ríkisfjölmiðlinum ber að gæta samkvæmt lögum, ekki síst í jafn viðamiklu pólitísku máli og þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB.

Krefjast úrskurðar um lögmæti atkvæðagreiðslunnar

Í niðurlagi kærunnar er aðalkrafan ítrekuð.

Kærendur fara fram á að úrskurðarnefnd kosningamála lýsi þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst ógilda.

Til vara er þess krafist að nefndin úrskurði að atkvæðagreiðslan sé haldin þeim ólögmætisannmörkum sem lýst er í kærunni, jafnvel þótt þeir verði ekki taldir nægja til þess að ógilda hana.


Þjóðólfur mun síðar í dag birta ítarlegri umfjöllun um lagarök kærunnar og þær málsástæður sem þar eru settar fram. Logi hefur meira og minna starfað í sjálfboðavinnu fyrir þjóðinna í þessu afdrifaríka máli. Þeir sem vilja styðja hann í baráttunni geta lagt inn styrk á reikning hans: Reikningsnúmer 0515-26-2556 kt. 060875-4059.