Kóraninn – Hið heilaga rit íslam

Kóraninn fullyrðir að hann sé nákvæmur og bókstaflegur í orðum hins eina guðs alheims. Hann segist vera fullkominn, tæmandi, endanlegur, eilífur, alþjóðlegur og án einnar einustu villu. Saga Kóransins er sú að engillinn Gabríel hafi talað til Múhameðs og flutt honum nákvæm orð Allah. Kóraninn er sannur samkvæmt eigin fullyrðingu, eða vegna þess að hann segist vera sannur. Miðlun Kóransins átti sér stað á 23 ára tímabili.

Kóraninn er í raun tvær bækur, fyrri Kóraninn sem skrifaður var í Mekka og síðari Kóraninn sem skrifaður var í Medína. Kóraninn frá Mekka er trúarlegs eðlis, en Kóraninn frá Medína er mjög pólitískur, lagalegur og helgar nær fjórðungi orða sinna heilögu stríði, eða jihad.

Aðalskilaboðin í Kóraninum frá Mekka eru þau að Múhameð sé spámaður Allah og að mannkynið verði að lúta Allah. Skilaboðin í Kóraninum frá Medína eru þau að ef þú trúir ekki að Múhameð sé spámaður Allah, þá getur þú sætt skaða.

Lesendur Kóransins finna hann erfiður og mótsagnakenndur. Ein af lykilreglum Kóransins er sú að ef tvö vers stangast á, þá er síðara versið sterkara og betra en hið fyrra. Ferlið við að ákvarða hvaða vers sé sterkara eða betra er skilgreint sem niðurfelling (abrogation). Vandamálið við þetta er að Kóraninum er ekki raðað í neina tímaröð, þannig að það er ruglingslegt að vita hvaða vers sé betra. Mjög mikið er af endursögnum í Kóraninn og sögur margoft endurteknar. Flestar sögurnar eru ófullgerðar og smáatriði breytast með endurtekningum.

Þjóðólfur sækir heimildir sínar til CSPII

Hér er að finna hlekki í aðrar greinar sem tengjast skóla Þjóðólfs í íslam

1. HIÐ PÓLITÍSKA ÍSLAM5. TVÍHYGGJA9. JIHAD
2. FIMM MEGINREGLUR6. UNDIRGEFNI10. SJARÍA
3. ÞRÍLEIKUR7. KÓRANINN11. DHIMMI
4. KAFÍRAR8. MOHAMMED12. KONUR