KONUR

Stjórnmál hafa áhrif á daglegt líf okkar, hvort sem við tökum þátt í þeim eða ekki. Stjórnmálaákvarðanir hafa áhrif á hversu háa skatta við greiðum, reglurnar sem við fylgjum og lífið sem við lifum. Þau hafa áhrif á klæðaburð okkar, menningu og lifnaðarhætti. Sjálft frelsið sem karlar og sérstaklega konur njóta í samfélögum sem eru ekki múslimsk sprettur úr stjórnmálakerfum og hugsun sem eru ekki íslamískar.

Íslam er hins vegar heildstæð siðmenning, trúarbrögð, menning og stjórnmálakerfi. Stjórnmálakerfi þess hefur sérstakan áhuga á þér, óháð áhuga þínum á því. Við köllum þetta kerfi hið pólitíska íslam (e. Political Islam). Þessi áhugi er svo mikill að 51% af kenningum íslam er helgað kafírum (þeim sem ekki eru múslimar). Þessar kenningar koma úr Kóraninum, Hadith og Sira, sem saman mynda þrenningu helgra texta þess.

Hið pólitíska íslam reynast konum sem eru ekki múslimar erfið, þar sem kenningar þess brjóta gegn lögum okkar og kerfum, sem byggja á meginreglum um jafnrétti.

Kóraninn skiptist í tvo hluta (Mekku- og Medínu-hlutann); sem gerir það að verkum að kenningarnar geta fjallað um konur á tvíbentan hátt. Til eru vers sem prísa móðurina umfram alla karla og segja að konur og karlar verði dæmd til jafns út frá verkum sínum á dómsdegi. Á sama tíma segja 71% af texta Kóransins sem fjallar um konur að kona hafi lægri stöðu en karlmaður. Í Hadith segja 91% af textanum sem fjallar um konur að kona hafi lægri stöðu en karlmaður.

Samkvæmt kenningum íslam er hver kona neðar sett en karlmaður og hver kafírakona er neðar sett en kona sem fylgir íslam. Einnig er hægt að nota kafírakonu sem kynlífsþræl og nauðga henni; þetta er siðferðilega samþykkt í hinu pólitíska íslam, þar sem Múhameð sjálfur átti fanga sem ekki voru múslímir og hann notaði sem kynlífsþræla.

Hér að neðan má fá nánari upplýsingar með því að horfa á myndband Bills Warner um konur íslams:

Heimildir eru sóttar til CSPII Alþjóðlegra miðstöðvar rannsókna á hinu pólitíska íslam

Hér er að finna hlekki í aðrar greinar sem tengjast skóla Þjóðólfs í íslam

1. HIÐ PÓLITÍSKA ÍSLAM5. TVÍHYGGJA9. JIHAD
2. FIMM MEGINREGLUR6. UNDIRGEFNI10. SJARÍA
3. ÞRÍLEIKUR7. KÓRANINN11. DHIMMI
4. KAFÍRAR8. MOHAMMED12. KONUR