Kjörstjórn vísar frá kæru um ólögmæti atkvæðagreiðslunnar

Þjóðólfi hefur borist til eyrna að kjörstjórn hafi vísað frá kæru þess hóps sem Logi Kjartansson lögfræðingur er umboðsmaður fyrir.

Samkvæmt fyrstu óstaðfestu fréttum er það gert á þeirri forsendu að þar sem Alþingi hafi ályktað um atkvæðagreiðsluna, þá sé farið að lögum. Þannig eru sjálf efnisatriði kærunnar ekki til umfjöllunar eða umræðu.

Ef Þjóðólfur hefur skilið málið rétt, þá eru tengsl við utanríkisráðherrann hjá þeirri nefnd sem fjallaði um málið og komst að þessari niðurstöðu.

Þjóðólfur mun reyna að ná tali af Loga Kjartanssonar fljótlega til að ræða þetta mál.

Meira efni kemur