Katrín litla

Eftirfarandi ljóð um fyrrverandi forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttir, gengur um á netinu. Ágætis lesning til minningar um horfna glanstíð og þjóðin situr uppi með brunarústirnar.

Hún sem áður uppúr stóð
á öllum gáfnaprófum,
hefur svikið sína þjóð
og sest til borðs með þjófum.

Hún sem þótti haukleg mær
og hafði kjarkinn mikla
í úlfakreppu andlaus fær
með íhaldi að sprikla.

Nú auðvaldið hún elskar heitt
og arðráni vill sinna
því aldraðir fá ekki neitt
og öryrkjar fá minna.

Er þingmenn okkar aumir fá
við orðaskak að fitla
á villigötum valdsins þá
vappar Katrín litla.

Höfundur Kristján Hreinsson

Fara efst á síðu