Kanada leitar nánari tengsla við ESB – Carney segir aðild ekki markmiðið

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, vill efla tengsl landsins við Evrópusambandið vegna viðskiptadeilna við Bandaríkin sem knýja á kanadísk stjórnvöld að leita nýrra samstarfsleiða. Fréttir um mögulega „aukaaðild“ Kanada að sambandinu hafa vakið athygli, en Carney segir markmiðið vera sérstakt bandalag fremur en aðild.

Wall Street Journal greindi á sunnudag frá því að Carney kannaði möguleika á svonefndri tengdri aðild, eða „associate membership“. Reuters tók fréttina upp og vísaði til ónafngreindra embættismanna í Kanada og hjá ESB. Samkvæmt þeim hefði sambandið sýnt hugmyndinni áhuga, en slíka aðildarstöðu þyrfti fyrst að skilgreina.

Carney var síðar spurður um umfjöllunina og sagði Kanada vilja mynda sérstakt bandalag við ESB en ekki verða aðildarríki þess.

Orka, varnarmál og tæknisamstarf

Samkvæmt umfjöllun Reuters um frétt Wall Street Journal hafa viðræðurnar meðal annars snúist um greiðari flutning vöru, þjónustu og starfsfólks á sviðum sem talin eru hafa sérstakt efnahagslegt og öryggislegt vægi. Þar eru nefnd orka, gervigreind, varnarmál og mikilvæg hráefni.

Einnig er rætt um samstarf við lagningu sæstrengja, uppbyggingu gagnavera, skýjaþjónustu og gervihnattakerfa, auk innviða til að flytja kanadíska orku til Evrópu. Hugmyndir um að auðvelda Kanadamönnum búsetu og atvinnu í ESB hafa sömuleiðis komið til umræðu, að sögn heimildarmanna blaðsins.

Vill forðast að vera háður Bandaríkjunum

Viðleitnin er hluti af áherslu Carneys á að fjölga viðskiptatækifærum Kanada á sama tíma og dregið er úr viðskiptum við Bandaríkin. Hann hefur jafnframt kynnt orkuauðlindir, hráefni og menntað vinnuafl Kanada fyrir alþjóðlegum fjárfestum.

Enn liggur ekki fyrir samkomulag um nýtt fyrirkomulag tengslanna við ESB. Umfang þess, réttindi og skuldbindingar beggja aðila eru því áfram óljós.