Poppstjarnan Katy Perry, kærasta fyrrverandi forsætisráðherra Kanada, Justins Trudeau, kann eflaust að syngja vel, en hún hefur engan sérstakn siðferðilegan smekk. Á sama tíma og Kanada glímir við krikjubrennufaraldur þá sýnir brot úr nýju tónlistarmyndbandi hennar (sjá X að aneðan) við lagið „Watch It Burn“ hana sitja í kirkju og syngja „Horfðu á hana brenna“.
Perry gaf lagið út 25. júní, og myndskeiðið sem hefur farið eins og eldur í sinu á netinu sýnir hana sitjandi í kirkjubekk syngjandi lagið, þar sem hún syngur um að kveikja í eldspýtu, henda henni aftur fyrir sig, reyna að fyrirgefa og gleyma, kveikja sér í sígarettu og horfa á hana brenna. Blaðamaðurinn Harrison Faulkner benti á:
„Katy Perry gaf út tónlistarmyndband við nýtt lag „Watch It Burn“, þar sem hún situr inni í kirkju og syngur um að brenna hana til grunna. Ég kveiki á eldspýtu, hendi henni aftur fyrir mig og horfi á hana brenna.“
Á meðan Justin Trudeau var forsætisráðherra voru yfir 100 kirkjur í Kanada brenndar eða skemmdarverk unnin á þeim
Horfðu á:”
Katy Perry released a music video for a new song “Watch It Burn” where she’s sitting inside of a church talking about burning it down.
— Harrison Faulkner (@Harry__Faulkner) June 30, 2026
“I light a match, throw it hard behind my back and watch it burn.”
When Justin Trudeau was Prime Minister over 100 churches in Canada were… pic.twitter.com/TONvK0WsOI
Nýleg rannsókn frá Macdonald-Laurier stofnuninni fullyrðir að íkveikjum í kanadískum kirkjum hafi fjölgað um helming frá árinu 2021.
The Gateway Pundit fjallaði nýlega um allar þær kirkjur sem hafa brunnið í Evrópu á undanförnum árum.
Gögn frá Ecclesiastical Insurance, sem er vinsælt tryggingafélag fyrir kristnar byggingar í Evrópu, sýna að á árunum 2020 til 2024 hafi verið kveikt í yfir 200 kirkjum.
