Kamúnismi í Ameríku …

Demókratar halda flokksþing sitt í Chicago Illinoi í skugga mikilla mótmæla á götum borgarinnar.Þjóðvarðliðið hefur verið kallað til borgarinnar. Ellliær Joe Biden er ennþá formlegur frambjóðandi flokksins en Kamilla Harris verður útnefnd síðar í vikunni. Biden var ýtt til hliðar af Barack Obama í kjölfar banatilræðis við Donald Trump fyrir rúmum mánuði. Hér var um valdarán var að ræða. Obama tilkynnti Biden að Kamilla sem varaforseti myndi beita 25. ákvæði við Stjórnarskrána; pro tempore vegna þess að Biden sem forseti væri ófær um að þjóna embættinu sakir ellihrumleika. Þetta var í kjölfar kappræðna á CNN. Þetta var eftir að Biden ruglaði saman Zelinsky og Pútin; Kamillu og Trump að viðstöddum Bjarna Ben! Þetta var eftir að Biden-stjórnin hafði staðið að baki banatilræðinu 13. júlí í Butler, Pennsylvaníu.

Hin sextuga Kamilla fótósjoppuð sem þrítug

Í kjölfarið fór af stað mikil áróðursbylgja til þess að skapa Kamillu sem forseta. Þar stigu dans CNN, BBC og auðvitað garmurinn RÚV sem héldu ekki vatni yfir Kamillu Harris. Fótósjoppaðar myndir af hinni sextugu Kamillu sem þrítugri birtast í vestrænum meginmiðlum. Henni var haldið frá viðtölum við fjölmiðla. Stelpunni er lýst sem saksóknara sem væri að berjast gegn glæpamanni sem héti Dónald Trump. Hún væri mikill stjórnvitringur. Þetta var sama konan og hafði verið sögulega óvinsælasti varaforseti Bandaríkjanna ófær um að tjá sig og misbeitt saksóknarvaldi. Á laugardag varð henni á að tjá sig um efnahagsmál þar sem fram koma tryllt ríkisútgjöld og gamaldags ríkisstýring verðlags; verðlagseftirlit ríkisins. Viðbrögð urðu afar hörð vestanhafs.

Kamúnismi og fögnuður Friðjóns XD

New York Post kallar stefnuyfirlýsingu hennar Kamúnisma; sósíalisma sem hafi mistekist alls staðar þar sem hann hafi verið reyndur í gamla Sovétinu og nú Venezúela. Myndir af henni dregnar upp í Chicago fyrir framan hamar&sigð. Helsti aðdáandi Kamillu hér á landi er Friðjón Friðjónson sjálfstæðismaður sem hefur agiterað fyrir öfgakonunni á vettvangi RÚV og Stöðvar2. Þetta verður ekki skáldað. Svona illa er XD staddur á guðlausri góbal trans-stefnu sinni; sjálf-ræðis-frelsi Siðmenntar sem sérstaklega beinist að rugla börn í ríminu. Kamilla lítur á sig utan of ofan við lög. Sem saksóknari sendi Kamilla 1.500 manns í fangelsi í Kaliforníu fyrir að reykja maríuana en reykti sjálf maríuana. Úr kappræðum demókrata 2020 sem bundu endi á forsetavonir Kamillu Harris sem vart fékk kjörmann. Hve öfgafull er Kamilla? https://youtu.be/o1-CRrMDSLs?si=H86DzBvaWlOv-J3D

Fara efst á síðu