Fyrsta skrefið í því að kynna sér stjórnmála íslam er að tileinka sér réttu hugtökin og nákvæmar skilgreiningar þeirra. Tungumál íslamskrar kenningar er tvíþætt og skiptir mannkyninu í trúaða og kafíra (kafir); þá sem trúa því að Múhameð sé sendiboði Allah, og þá sem gera það ekki. Kafir er raunverulegt orð sem Kóraninn notar um þá sem ekki eru múslimar.
Það er yfirleitt þýtt sem vantrúaður eða ógæfumaður, en sú þýðing er ónákvæm. Orðið „vantrúaður“ er hlutlaust, á meðan viðhorf Kóransins gagnvart kafírum er mjög neikvætt þar sem það skilgreinir kafírinn sem einhvern sem Allah hatar.
Þegar lesið er í heild sinni – Kóraninn, Sira (ævisaga Múhameðs) og Hadith (hefðir Múhameðs) – kemur í ljós að textinn er heltekinn af kafírum. Yfir helmingur Kóransins fjallar um kafírinn. Það er yfirlýst markmið stjórnmála íslams að snúa öllum kafírum til trúar, leggja þá undir sig eða útrýma þeim.

🌐 Bill Warner Forseti og stofnandi, CSPII
Til að auðvelda lesendum að skilja framandi texta hins pólitíska íslams, munum við birta, á komandi vikum, greinar hugtök og nákvæmar skilgreiningar þeirra. Með hverri grein fylgir stutt myndband þar sem Bill Warner stofnandi CSPII fræðir okkur um samhengi hlutana.
Allar heimildir eru sóttar til CSPII Alþjóðlegra miðstöðvar rannsókna á hinu pólitíska íslam

