Jólasveinaskýrslan

Á miðvikudag birti Morgunblaðið grein eftir mig: Jólasveinar Evrópusambandsins sem var svar mitt við grein Gunnars Hökmarks og Patrik Oksanen í Mbl. vikunni áður: Ísland þarfnast varnarliðs – hríðin er skollin á. Ég gagnrýndi skrif þeirra sem áróður fyrir stækkun ESB, sem herrarnir sögðu ekki frá í grein sinni. Þeir vísuðu í skýrslu hugveitu sinnar: Jólasveinninn er í snjóstorminum sem ég linka til hér svo allir geti kynnt sér sjálfir milliliðalaust boðskap skýrslunnar. 

Undir því yfirskyni að vera að aðstoða Íslendinga við að efla varnir Íslands með því að koma á fót eigin her er hið raunverulega markmiðið yfirtaka ESB á Íslandi og jafnframt Noregi, Færeyjum og Grænlandi og að Svíar og Danir leggi niður krónuna og taki upp evruna. 

Sífellt harðari orðræða á milli ESB og Bandaríkjanna sýnir ásetning ESB að verða að herveldi Evrópu og fara í stórstyrjöld gegn Rússum. Hökmark og Oksanen ganga svo langt í jólasveinaskýrslunni, að þeir ásaka Bandaríkjastjórn um að vera leppur Rússlandsstjórnar og Kína. 

Hið sama var upp á teningnum á umræðum um varnarmál á fundi Háskóla Akureyrar í vikunni sem einkenndist af fólskulegum árásum á traustasta vin Íslands frá seinni heimsstyrjöldinni, Bandaríkin. Utanríkisráðherrann tók þátt í þessum rógburði ásamt flestum ræðumönnum. Allt ber þetta að sama brunni. Verið er að hafa áhrif á afstöðu landsmanna til að játast ofurvaldi ESB og hætta samstarfi við Bandaríkin. 

Svik ríkisstjórnarflokkanna við farsæla varnarmálastefnu Íslands frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar og svik við varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna gætu ekki verið skýrari. Beygja á Ísland undir hið nýja herveldi Evrópu, ESB, þar sem Þýskaland rís upp sem ægishjálmur meginlandsins eina ferðina enn. Ríkisstjórnin hefur farið á bak við þjóðina í varnarmálum með skuldbindingu Íslands við hernaðarstefnu Evrópusambandsins og fjáraustri til Úkraínu án þess að spyrja þing eða þjóð eða upplýsa um málið. Unnið er gegn friði í Úkraínu með óraunsæjum kröfum um sigur yfir Rússum.

Samhliða þessu hleypir ríkisstjórnin öllu í uppnám á Íslandi með árásum á undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar og skapar atvinnu- og efnahagskreppu með aðgerðum sínum fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu Íslands í ESB. Þetta er leið ESB sem þarf á kreppum að halda til að réttlæta tilvist skrímslins í Brussel. 

Fara efst á síðu