Myndin sýnir varðskipið Þór í einu af þorskastríðum Íslands á fyrri öld.
Já-sinnar í Hörpu voru með það á hreinu að Ísland verður að gangast undir sameiginlega fiskveiðistefnu ESB við inngöngu Íslands í ESB. Það þýðir að fullveldisbaráttu liðinna áratuga verður varpað fyrir róða og spánskir, portúgalskir, hollenskir, franskir og aðrir togarar fá ESB fá að veiða í landhelgi Íslands. Allur sá árangur, sem fyrri kynslóðir hafa barist fyrir til að byggja upp landið okkar, þar sem útfærsla landhelginnar hefur skipt höfuðmáli fyrir velgengni þjóðarinnar, verður að engu gerður og ákvörðunarvald yfir fiskimiðum fært til erlends ríkjasamband með miðstjórn í Brussel. Er nema von að menn spyrji: Til hvers var þá barist?
Annað mál eins og viðmælandi Þjóðólfs, Gústaf Níelsson, sagnfræðingur hefur bent á, er að gangi Ísland í ESB opnast leið fyrir erlent fjármagn að streyma óhindrað inn í sjávarútveginn á Íslandi og gríðarleg hætta á að fyrirtækin yrðu seld alþjóðlegum fjárfestum með fulla vasa fjár sem tækju þá yfir þessa atvinnugrein sem hefur verið bjargvættur þjóðarinnar frá því landið byggðist. Ef slíkt gerðist yrðu trillukarlarnir sem fiska við strendur landsins síðasta von Íslendinga.
Allt bendir til þess að Jásinnar séu svo illa upplýstir að þeir vilja farga gersemum þjóðarinnar til að sjá innihaldið í pakkanum: Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misstu hefur.
Hér að neðan má sjá smá fréttafrásögn sem gengur um á netinu en þar ræða þau Selma og Steinar Ingi hjá X-Nei um fundinn og eru það aðallega tvö atriði sem stóðu uppúr hjá Jásinnum: Viðurkenning á því að aðildarviðræður eru aðlögunarviðræður á inngöngu Íslands í ESB og viðurkenning á yfirtöku ESB á sjávarútvegsmálum Íslendinga.
Nei hliðin vann kappræðuna að mati þeirra Selmu og Steinars.
