Breski íhaldsmaðurinn Jackob Rees-Mogg var kjörinn á þing fyrir Íhaldsflokkinn árið 2010. Hann sat í neðri deild breska þingsins til 2024. Hann varð sérstaklega áberandi í Brexit-baráttunni og var formaður European Research Group (ERG), áhrifamikils hóps ESB-gagnrýninna þingmanna Íhaldsflokksins. Í dag er hann meðal annars sjónvarpsmaður hjá GB News, skrifar um stjórnmál og sögu og heldur áfram að vera áberandi rödd breskrar íhalds- og fullveldishyggju. Hann sendi frá sér myndskeið, sjá að neðan, þar sem hann lýsir fögnuði yfir afstöðu Íslendinga sem kusu sjálfstæðið:
„Góðar fréttir frá Íslandi. Ég varð mjög ánægður að sjá að Íslendingar kusu sjálfstæðið.
Hversu stórkostlegt er það ekki að lítið land með fáa íbúa skuli hafa trú á eigin sjálfstæði og eigin fullveldi.
Þetta ætti að vera lærdómur fyrir alla úrtölumennina hér í landi.
Ef Ísland getur staðið á eigin fótum, haft sjálfstraust og trú á eigin frelsi og eigin lífsháttum, og þarf ekki að vera þræll Evrópusambandsins, hvers vegna er þá enn til fólk hér í landi sem telur að það sé góð hugmynd að vera í Evrópusambandinu og vera undir oki Evrópu?
Vel gert, Ísland. Ég held að margir hér í landi beri gríðarlega virðingu fyrir ykkur og íslensku þjóðinni.“
— Jacob Rees-Mogg, fyrrverandi ráðherra í bresku ríkisstjórninni og einn þekktasti Brexit-sinni Bretlands
