Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifar í fróðleiksmolum úr sögu og samtíð í Mbl:
Stuðningsmenn aðildar Íslands að Evrópusambandinu vita, að ekki er meiri hluti fyrir aðild. Þess vegna leggja þeir nú málið fyrir þannig, sé sagt já við að hefja á ný aðildarviðræður við ESB, þá aðeins sé verið að skoða aðild, ekki sækja um. En auðvitað er verið að sækja um. Það er verið að endurnýja aðildarumsóknina frá 2009.
Þeir ganga fram undir vígorðinu Já til að sjá. En kostnaðarsamt aðlögunarferli hefst, um leið og samþykkt yrði að hefja á ný aðildarviðræður.
Já gæti líka haft ýmsar afleiðingar í utanríkismálum. Í fyrsta lagi verður þá samstarfinu á Evrópska efnahagssvæðinu og í Fríverslunarsamtökum Evrópu, EFTA, við Noreg, Liechtenstein og Sviss teflt í tvísýnu, eins og Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur bent á. Óvíst er, að Ísland geti snúið aftur inn í óbreytt EES, reynist já til að sjá verða já til að sjá eftir.
Í öðru lagi kann afstaða Bandaríkjanna til Íslands að breytast, ef Ísland gengur í ESB, sem er að ummyndast úr tollabandalagi í sambandsríki með eigin her og eigin utanríkisstefnu. Með varnarsamningnum 1951 tóku Bandaríkin, öflugasta herveldi heims, að sér að gæta öryggis Íslands, og er samningurinn einstæður innan Atlantshafsbandalagsins, eins og dr. Gunnar Pálsson, fyrrverandi sendiherra, hefur bent á. Við munum sjá eftir því, ef þetta samband veikist.
Í þriðja lagi hljóta Íslendingar auðvitað að eiga vinsamlegt samstarf við ESB, enda er helmingur utanríkisviðskipta okkar við það, þótt þau séu mestöll í bandaríkjadölum, ekki evrum. Ef Íslendingar segja fyrst já til að sjá, en þeim líst síðan ekki á og hafna aðild, þá kann þetta samstarf að spillast, og já til að sjá verður enn já til að sjá eftir.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar

Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
