Já þýðir að Ísland myndi leysast upp í „einsleitri súpu“ Evrópusambandsins

Carl Baudenbacher skrifar grein í Morgunblað dagsins, þar sem hann ræðir þann hræðsluáróður sem er í gangi varðandi ESB-atkvæðagreiðsluna. Hann segir það illa samræmast stoltri þjóð sem hefur lifað af einangrun, fjármálahrun, eldgosavá og þrýsting sem smáríki að fara að hlýða á rök sem hvetja hana til að bregðast við af ótta.

„Þjóðaratkvæðagreiðsla Íslands um ESB ætti að vera metin út frá þjóðlegu sjálfstrausti, ekki ótta. Útgangspunkturinn er einfaldur: nú er erfitt að koma auga á ein sannfærandi rök fyrir því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Ísland er þegar djúpt samþætt Evrópu í gegnum EES, Schengen og víðtækara laga- og stjórnmálasamstarf.“

Baudenbacher telur upp rökin til að vera áfram í EES samningnum en margir kostir hans færu forgörðum gengi Ísland í ESB:

„EES/EFTA-líkanið er ekki biðstofa fyrir ESB-aðild. Það er starfandi stofnanalegt fyrirkomulag. Það veitir Íslandi víðtækan aðgang að innri markaðnum en varðveitir jafnframt yfirráð yfir fiskveiðum, landbúnaði, gjaldmiðli, orku, viðskiptastefnu og – mikilvægast af öllu – sjálfstæðu EFTA-stoðinni. Icesave-málið sýndi í hvers vegna þetta sjálfræði skiptir máli í framkvæmd. Það var ekki aðeins fjármáladeila. Það var einnig prófsteinn á það hvort smáríki gæti varið lagalega stöðu sína þegar sterkur pólitískur þrýstingur kom að utan. Ísland gerði það fyrir EFTA-dómstólnum og niðurstaðan staðfesti að þetta stofnanalega svigrúm getur haft raunverulegt gildi.

Aðild að ESB myndi færa Ísland út úr tveggja stoða EES-kerfinu og inn í stofnanakerfi ESB sjálfs. Fyrir mjög lítið sæti við borð stofnana ESB þyrfti Ísland að yfirgefa EFTA-stoðina, þar á meðal ESA og EFTA-dómstólinn. Sérhverjar verndarráðstafanir sem samið yrði um við inngöngu myndu vera innan kerfis sem framkvæmdastjórnin hefur eftirlit með og dómstóll Evrópusambandsins túlkar. Ísland fengi formlega þátttöku í ákvörðunum í Brussel, en það myndi einnig tapa hagnýtu sjálfræði á sviðum sem hafa mikla stjórnskipulega og efnahagslega þýðingu.

Carl Baudenbacher fv. forseti EFTA-dómstólsins.

Fiskveiðar eru skýrasta dæmið. Þar eru ekki bara enn ein atvinnugreinin. Fyrir Ísland eru þær hluti af þjóðarvitund, byggðalífi og langtímaauðlindastefnu. ESB-aðild myndi færa Ísland inn í sameiginlegan stefnuramma þar sem lagaleg yfirráð, markaðsaðgangur og pólitísk samningsstaða eru nátengd. Jafnvel með bráðabirgða- eða sérlausnum myndi grundvallarstaðan breytast: Ísland stæði ekki lengur utan sambandsins þegar ytri mörk fiskveiðistefnu væru ákveðin. Hið sama á við, með mismunandi hætti, um landbúnað, orku, utanríkisstefnu, utanríkisviðskipti og peningastefnu.

Hinn þekkti þýski heimspekingur Peter Sloterdijk varaði Sviss við því að leyfa sér að leysast upp í „einsleitri súpu“ Evrópusambandsins. Svipuð sjónarmið eiga við um Ísland. Lítið, farsælt og sjálfsöruggt ríki ætti að sýna sérstaka varúð áður en það skiptir stofnanalegri sérstöðu sinni út fyrir upptöku í stærri pólitíska heild.“

Sjálfsörugg ákvörðun

„Ísland ætti ekki að láta hræða sig inn í aðild. Nema ESB-aðild bjóði upp á áþreifanlegan, varanlegan og stjórnskipulega meiri ávinning ætti Ísland að viðhalda og styrkja EES. Sönnunarbyrðin hvílir á þeim sem vilja skipta út evrópsku fyrirkomulagi sem virkar, ekki á þeim sem vilja varðveita það. Icesave-kreppan sýndi einmitt að Ísland býr yfir stofnunum beins lýðræðis sem starfa sem skyldi. Þær ætti ekki að veikja eða afnema. Þvert á móti ætti að þróa þær áfram og styrkja. Sú niðurstaða er ekki varnarviðbragð. Hún er tjáning þjóðlegs sjálfstrausts.“

Baudenbacher lýkur grein sinni með þessum orðum:

„Já-atkvæði 29. ágúst 2026 hefði vissulega ekki lagalega bindandi áhrif. En það væri heldur ekki aðeins saklaus leið til að komast að því „hvað er í boði“. Hinn pólitíski veruleiki er sá að slíkt atkvæði gæti opnað flóðgáttir áróðurs og skapað væntingar sem erfitt væri að halda í skefjum. Stjórnmálamenn lofa miklu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur. Hvort staðið yrði við það sem lofað er fyrir 29. ágúst eftir já-atkvæði er opin spurning. Feneyjanefndin hefur lagt áherslu á að þjóðaratkvæðagreiðslur verði að fara fram við aðstæður sem gera kjósendum kleift að mynda sér skoðun frjálst og á grundvelli skýrra upplýsinga. Sá mælikvarði samrýmist illa kosningabaráttu sem er knúin áfram af ótta og óljósum loforðum.“