Ísland þvert á flokka tjáir vilja þjóðarinnar

Í gær, 14. júní, hélt hinn vaxandi hópur Ísland þvert á flokka aftur fund á Austurvelli í blíðskaparveðri til að mótmæla stefnu ríkisstjórnarinnar í innflytjendamálum. Augljóst er að lítið samfélag eins og Ísland veldur ekki öllum þeim fjölda sem stefnt hefur verið til landsins og haldið er áfram að stefna til landsins. Talað er um 100 milljarða kostnað af fjárlögum sem fer sífellt hækkandi og ekki verður notað til dæmis til heilbrigðis- eða skólamála.

Ræðumenn dagsins fóru yfir skort á landamæragæslu og þá hrokafullu afstöðu stjórnvalda að reyna að kæfa niður umræðu um innflytjendamálin með því að uppnefna almenna borgara sem vilja ræða málin. Þá var því einnig andmælt, sú vaxandi tilhneiging stjórnvalda að reka burtu þá einstaklinga sem halda uppi heiðarlegri, sanngjarni og málefnalegri gagnrýni vegna þeirra bresta í samfélaginu sem bitnar á almenningi öllum eins og hömlulaus fólksinnflutningur gerir.

Vill hópurinn að gert verði hlé á innflytjendastreyminu til landsins, að ólöglegum verði vísað úr landi og að þeir sem koma til landsins í þeim tilgangi einum að fremja glæpi verði umsvifalaust vísað úr landi. Fjölmenni var á fundinum og skemmdarverkalið ekki nærri.

Hér að neðan má sjá myndskeið með ræðum ræðumanna ásamt nokkrum myndum frá útifundinum:

Jón Magnússon Hæstaréttarlögmaður og fv. alþingismaður, ræddi hina misheppnuðu stefnu í innflytjendamálum og einnig aukna valdbeitingu yfirvalda gegn hvers lags málefnalegum umræðum með brottrekstri manna úr störfum og sviptingu læknaleyfa.

Aðrir ræðumenn tóku undir sama streng og Baldur Borgþórsson fv. varaborgarfulltrúi sagði það almenna skynsemi og sjálfsagðar kröfu að stjórnvöld settu hagsmuni íslensku þjóðarinnar fyrst. Það hefðu þau ekki gert að undanförnu og því þyrfti að breyta.

Fara efst á síðu