Ísland á að forðast að verða peð í valdataflinu um norðurslóðir

Undirritaður varar við því í grein í Morgunblaðinu í dag að Ísland dragist inn í vaxandi valdabaráttu stórveldanna um norðurslóðir. Hagsmunum landsins er best borgið með því að halda eins miklu sjálfstæði og hlutleysi og mögulegt er í þeirri baráttu. Greinin ber yfirskriftina „Valdataflið um norðurslóðir“ og þar er fjallað um aukinn áhuga Bandaríkjanna, Rússlands, Evrópusambandsins og Kína á norðurslóðum og þá miklu hernaðarlegu og efnahagslegu hagsmuni sem þar eru undir.

Tilefni greinarinnar er meðal annars kort Donalds Trumps Bandaríkjaforseta þar sem Ísland og Grænland eru sýnd í bandarísku fánalitunum. Kortið hefur vakið mikil pólitísk viðbrögð en Íslendingar eiga fremur að horfa á stærri myndina: baráttuna um norðurslóðir og stöðu Íslands í henni.

Hugmyndir um að skipta Rússlandi upp

Umræða innan bandarísku Helsinki-nefndarinnar og hugmyndir sem komið hafa fram um svokallaða „afnýlenduvæðingu Rússlands“ eru allrar athygli verðar. Í greininni er vísað til samtaka sem vilja að Rússlandi verði skipt upp í allt að 41 sjálfstætt ríki. Slíkar árásargjarnar hugmyndir verði að skoða í ljósi þess að Rússland er stærsta kjarnorkuveldi heims.

Upplausn slíks ríkis gæti skapað hættu sem næði langt út fyrir landamæri Rússlands.

Hugmyndir um aukna vestræna nærveru á norðurslóðum tengjast ekki aðeins hernaðarlegum hagsmunum heldur einnig náttúruauðlindum, siglingaleiðum og vaxandi mikilvægi svæðisins í alþjóðlegri valdabaráttu.

ESB horfir einnig til norðurs

Evrópusambandið er einnig þátttakandi í þessu valdatafli eins og sjá má á auknum áhuga sambandsins á Grænlandi og norðurslóðum og heimsókn Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, til Grænlands.

Það er mikilvægt að Ísland verði ekki nýtt sem brú eða stökkpallur fyrir stórveldi sem keppast um áhrif á norðurslóðum.

Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst, þar sem Íslendingar höfnuðu því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju, falla vel að þeirri að hlutleysisstefnu Íslands, í þeirri afstöðu felst mikil framsýni.

Ísland á að standa utan valdabaráttunnar

Ísland á ekki að velja sér hlutverk í átökum stórveldanna heldur leggja áherslu á sjálfstæði sitt, frið og eigin þjóðarhagsmuni.

Evrópusambandið og önnur stórveldi sýna norðurslóðum vaxandi áhuga, en Ísland á ekki að láta draga sig inn í átök sem það hefur lítið vald yfir.

„Trump leggur sín kort á borðið. Rússland leggur sín kort á borðið. En Evrópusambandið er óheiðarlegt og sýnir engin kort en byggir upp valdakerfi sem fer inn á landakort hinna tveggja.“

Ísland á því að halda fast í sjálfstæði sitt og forðast að verða peð í sífellt harðari valdabaráttu um norðurslóðir.