Íhaldsmaðurinn Karol Nawrocki vann forsetakosningarnar í Póllandi, eftir spennandi og jafnar tvær umferðir kosninganna.
Fyrsta umferð forsetakosninganna var jöfn og frjálslyndi frambjóðandinn Rafał Trzaskowski, sem er ESB-sinnaður frambjóðandi Donalds Tusk, úr flokknum Borgaralegi vettvangurinn, hlaut 31,4% atkvæða en íhaldsmaðurinn Karol Nawrocki úr flokknum Lög og réttlæti fékk 29,5%.
Á mánudagsmorgun var ljóst að Karol Nawrocki hafði fengið 50,89% atkvæða í annarri umferð forsetakosninganna, sem haldnar voru á sunnudag. Rafał Trzaskowski varð að sætta sig við 49,11%.
Þetta þýðir að forsætisráðherra landsins, Donald Tusk, sem er stuðningsmaður ESB, verður að halda áfram að eiga við íhaldssaman forseta sem deilir ekki skoðunum hans – og sem hefur einnig möguleika á að stöðva störf hans með neitunarvaldi sínu.
Po zliczeniu głosów ze wszystkich komisji wyborczych:
— OficjalneZero (@OficjalneZero) June 2, 2025
• Karol Nawrocki – 50.89% (10 606 628 głosów)
• Rafał Trzaskowski – 49.11% (10 237 177 głosów)
oficjalnie Prezydentem Rzeczypospolitej Polskiej zostaje Karol Nawrocki. 🗣️ pic.twitter.com/3zi83xv3Ek