Vegna þeirrar umræðu um að allt sé svo miklu flottara og betra í ESB löndum, þá er hér eitt lítið dæmi frá ESB-draumaríkinu Svíþjóð. Sameignarfélagið Riksbyggen sem á um 179 þúsund búseturétti í Svíþjóð og 15 þúsund leiguíbúðir hefur reiknað út að 25 ára einstaklingur hefur að meðaltali aðeins efni á samtals 1,9 fermetra íbúð (búseturétti) í Stokkhólmsborg. Í Gautaborg er talan 3,1 fermetrar og í Umeå 4,5 fermetrar. Þetta kemur fram í fermetravísitölu félagsins.
Riksbyggen hefur reiknað út hversu marga fermetra íbúð í búseturétti venjulegur meðal 25 ára Sví hefur efni á að kaupa sem reiknað er út frá tekjum, sparifé, skilmálum íbúðalána og fermetraverði á hverjum stað. Verst er staðan í Stokkhólmi, þar sem niðurstaðan er aðeins 1,9 fermetrar.
Munurinn er þó mikill – í Filipstad nægir sama fjárhagsstaða til að kaupa 83,4 fermetra. Í Gautaborg er sambærileg stærð 3,1 fermetri og í Umeå 4,5 fermetrar. Í Gautaborg hafa 43% af ungu fólki áhyggjur af því að þeim muni ekki takast að finna sér bústað í framtíðinni samkvæmt grein hópsins Ég vill fá bústað í GautaborgarPóstinum 14. maí s.l. Samtökin gagnrýna einnig tilboð um ókeypis skráningu á umsækjendalista, þegar það tekur 10 til 30 ár að fá tilboð um lausa íbúð. Um 24 þúsund ungmenni búa gegn vilja sínum áfram hjá pabba og mömmu.
Í Stokkhólmi eru um 900 þúsund manns á biðlista eftir húsnæði. Það tekur að minnsta kosti 20-30 ár að fá leigusamning. Sumir halda því fram að biðtíminn sé 30-40 ár, í það minnsta ef maður hefur sérkröfur um íbúð og stað eins og Marita sem beið í 35 ár og fékk 2ja herbergja íbúð á Östermalm með útsýni yfir grænan garð.
Meðal 25–34 ára einstaklinga sem búa enn heima segir næstum annar hver að fjárhagurinn sé helsta ástæðan. Johanna Frelin, forstjóri Riksbyggen, segir í fréttatilkynningu:
„Könnunin staðfestir það sem við höfum lengi séð: Húsnæðismarkaðurinn er orðinn stéttaskiptur. Ef foreldrar þínir eiga fjármagn geturðu keypt þér húsnæði. Ef svo er ekki stendurðu utan við húsnæðismarkaðinn – sama hversu mikið þú vinnur eða sparar. Þetta er óeðlilegt og kallar á pólitískar lausnir.“
Samtökin Ég vil fá bústað sem meðal annars eru styrkt af Riksbyggen, vara einnig við stöðunni. Klara Eklund, formaður jagvillhabostad.nu segir:
„Við mætum ungu fólki sem gerir allt rétt: menntar sig, vinnur og sparar peninga. Samt dugar það ekki til að eignast eigið húsnæði. Þegar sífellt fleiri neyðast til að treysta á ótrygga leigusamninga á eftirmarkaði eða búa áfram nauðugir hjá foreldrum sínum er það merki um að húsnæðismarkaðurinn virkar ekki eins og honum er ætlað.“
Hægt er að skoða lista Riksbyggen yfir öll sveitarfélög með því að fylgja þessum hlekk og einnig er hægt að lesa og hlaða niður skýrslu þeirra um fermetravísitöluna hér að neðan:
