Hvergi betra ísbað en á Grænlandi

Eftir samning Danmerkur og Grænlands við Bandaríkin geta menn andað léttara í okkar heimshluta.

Sérstaklega ætti þungu fargi að vera létt í íslenska utanríkisráðuneytinu fyrir snjallræði Dana og Grænlendinga að gera þennan snilldarsamning við Donald Trump. Valkyrjurnar ættu að læra af dönsku krötunum, hvernig hemja á skrímslið í Hvíta húsinu og drífa sig í ferð til Grænlands og fara í ísbað með bæði Bandaríkjamönnum og Grænlendingum.

Það yrði upphaf nýrrar aldar velferðar á Íslandi.

Hér að neðan er myndband af samfélagsmiðlum sem sýnir nokkra hugaða Bandaríkjamenn fara í ísbað á Grænlandi.

Gerum Grænland mikilvægt aftur sögðu þeir. Undir það taka valkyrjurnar hástöfum um þessar mundir.

G R Æ N L A N D!