Hver tekur mark á Össuri lengur?

Greifi Drakúla. Persónurnar á myndinni hafa ekkert samband við greinina.

Össur Skarphéðinsson dansar yfir endurvakningu ESB-umsóknarlíksins frá 2009 svona rétt eins og hann hefði sjálfur endurvakið anda hins gleymda vampýruflokks sem hann veitti forstöðu ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur. En eitthvað hefur rispast við endurvakninguna, því þegar myrkrið skall á og vampýraugun fóru að sjá, þá sáu þau Trump hinn hræðilega og MAGA . (Ekki fiskimaga heldur amerísku M-A-G-A hreyfinguna, þið vitið, Make America Great Again).

Áfram Ísland er því stofnað af erkióvini allar vampýra, þeim Donald Trump og Ólafi Ragnari Grímssyni, báðir hræðilegir menn sem vitlausa fólkið kaus til að vinna fyrir sig. Sem og þeir gerðu… og gera enn, hver á sinn hátt, þökk sé þeim báðum. Trump heldur á krossi og Ólafur pússar silfurkúluna fyrir VPV, VamPýruVofuna, skötulíki ESB-umsóknarinnar frá fyrra afrekstímabili jafnaðarmanna og fylgifiska þeirra.

Össur lýsir sjálfum sér á eftirfarandi hátt:

„Vampýran ræðst á stofnanir, sakar menn um að ganga erinda erlends valds. Engin málamiðlun er möguleg. Staðreyndir eru affluttar. Afgreiddar sem “fake news”. Andstæðingurinn er ekki bara með aðra skoðun. Hann er svikari….” Þannig mætti lengi telja.

Vampýrum er meinilla við íslenska sjómenn enda hafa heilu kyslóðir þeirra orðið sjóveikar á skipum milli meginlandsins og Íslands. Þrátt fyrir að hafa safnað gulltönnum allra blóðlausra líka eftir útrásarvíkingana, þá hrekkur það skammt gegn gegn hinum ógurlegu sjómönnum sem nota Morgunblaðið til að segja afrekssögur sínar. Og ekki dugar neitt gegn krossi Trumps og silfurkúlu Ólafs.

Össur hefur mestar áhyggjur af gagnrýni á Evrópusambandið og vill hlaupa þar í skjól í staðinn fyrir að mæta vampýruóvinunum þeim Trump eða Ólafi.

Þegar dagur rís að morgni sunnudags 30. ágúst gæti birtan gert endanlega út af við endurvakninginn sem vampýruflokkurinn bindur líf sitt við.

Þá er betra að flýja til vina sinna í Brussel í stað þess að mæta örlögunum með augnráði Washington í dagsbirtu.