Hver hefur umboð til að ákveða hvað nei meirihluta kjósenda þýði í samskiptum Íslands við ESB?

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, spyr hvort Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi haft umboð til að tilkynna að staða aðildarferlis Íslands gagnvart Evrópusambandinu haldist óbreytt þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Hann beinir jafnframt sjónum að Pawel Bartoszek, formanni utanríkismálanefndar Alþingis, og spyr hvað hann hyggist gera.

Í bloggfærslu sinni, „Hvað gerir Pawel?“, segir Björn framgöngu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna kalla á grundvallarspurningu: Hver hafi umboð til að ákveða hvað nei meirihluta kjósenda þýði í samskiptum Íslands við ESB?

Ríkisstjórnin óskaði eftir umboði þjóðarinnar til að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju en meirihluti kjósenda hafnaði því 29. ágúst.

Björn vekur sérstaka athygli á bréfi sem Þorgerður Katrín sendi utanríkisráðherra Írlands 8. september, í hlutverki hans sem forseta ráðherraráðs ESB. Þar sagði utanríkisráðherra að hún virti niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og myndi því ekki sækjast eftir því að taka upp aðildarviðræður að nýju, „en staða aðildarferlis okkar helst óbreytt“.

Björn segir þessa yfirlýsingu óhjákvæmilega stofna til ágreinings. Hann bendir á að enginn haldi því fram að nei þjóðarinnar hafi eitt og sér sjálfkrafa afturkallað umsókn Íslands frá 2009. Álitamálið sé hins vegar annað: Hver hafi umboð til að ákveða og tilkynna öðrum ríkjum að staða aðildarferlisins skuli haldast óbreytt eftir að þjóðin hafnaði endurupptöku viðræðna?

Þingmenn sagðir standa frammi fyrir orðnum hlut

Björn Bjarnason fv. dómmsmálaráðherra

Björn rifjar upp að Þorgerður Katrín hafi 30. ágúst sagst ekki vilja tjá sig um næstu skref fyrr en hún hefði ráðgast við utanríkismálanefnd Alþingis.

Nefndin kom saman 31. ágúst að ósk ráðherrans. Að sögn Björns kynnti hún þar hvorki þá túlkun sem síðar birtist í bréfinu né tillögu um næstu skref. Bréfið var síðan sent 8. september, daginn áður en Alþingi kom saman.

„Þingmenn standa með öðrum orðum frammi fyrir orðnum hlut,“ segir Björn.

Diljá Mist Einarsdóttir og Hildur Sverrisdóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd, hafa vegna þessa sent Pawel Bartoszek, formanni nefndarinnar, opið bréf.

Þær benda á að afstaða stjórnvalda sem birtist í bréfi utanríkisráðherra hafi hvorki verið kynnt þjóðinni né utanríkismálanefnd. Þær vísa til 1. mgr. 24. gr. þingskapalaga og telja „án nokkurs vafa um að ræða meiriháttar utanríkismál“ sem ráðherra hafi borið að ráðfæra sig um við nefndina.

Þær krefjast þess að Pawel boði utanríkismálanefnd til fundar. Björn tekur afstöðu með þeirri kröfu og segir hana réttmæta.

„Tap er tap“

Björn rifjar jafnframt upp orð Pawels fyrir fund utanríkismálanefndar 31. ágúst. Þá sagði hann:

„Ég held að það sé bara tilefni til þess að ræða alla þætti málsins.“

Pawel gekk jafnframt lengra í túlkun sinni á úrslitunum en formaður Viðreisnar og sagði niðurstöðuna skýra:

„Niðurstaðan er skýr og við vinnum með hana.“ Og bætti við: „En tap er tap. Það þýðir ekki að skafa ofan af því.“

Björn telur þessi orð fara illa saman við þá stefnu sem Þorgerður Katrín hafi síðan markað. Að hans mati vill utanríkisráðherra ekki líta á neið 29. ágúst sem endapunkt heldur halda ESB-málinu pólitískt lifandi.

Hann bendir einnig á ræðu Þorgerðar Katrínar á Alþingi að kvöldi 9. september, þar sem hún setti niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar í samhengi við stærri pólitísk átök í Evrópu og nefndi meðal annars Marine Le Pen í Frakklandi, Nigel Farage í Bretlandi og AfD í Þýskalandi.

Björn lýkur færslunni með því að beina málinu aftur að grundvallarspurningunni um lýðræðislegt umboð stjórnvalda eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.

„En áður en íslenskur utanríkisráðherra leggur af stað í þá baráttu þarf hún að svara einfaldari spurningu hér heima: Hver veitti henni umboð til að ákveða að neiið 29. ágúst breytti engu?“