Eitthvað hefur útifundur helgarinnar á Austurvelli komið við kaunin á vókuðum þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna sem hrauna yfir fólk sem bendir á vankanta galopinna landamæra og kallar það öllum illum nöfnum. Er um hreina hatursorðræðu að ræða, þar sem stjórnarliðar kalla fundarmenn sem héldu á íslenska fánanum fyrir rasista og ljúga upp á þá alls kyns óhuggulegheitum í sambandi við saklausa innflytjendur. Að kalla fólk rasista og segja að það hati innflytjendur fyrir það eitt að vilja að Ísland taki tilbaka stjórn á eigin landamærum úr höndum ESB, sem hrúgar skilríkjalausum innflytjendum inn í landið, er hámark ósvífni og fullkomin falskenning.
Slík orðræða hittir stjórnarliða sjálfa beint í mark sem þola enga málefnalega umræðu um innflytjendamálin. Ef nefnd eru einstök dæmi um ofbeldi útlendinga sem því miður eru að færast í aukana þá er viðkomandi gert upp þá skoðun að vera almennt á móti öllum innflytjendum. Það sýnir í hvílíkum ógöngum stjórnarliðar eru staddir sem geta ekki rætt málin á nákvæmari hátt án þess að missa sig.

Sem betur fer er margir hressir talsmenn heilbrigðrar landamæragæslu. Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður er einn sá hressasti og á Facebook skrifar hann eftirfarandi um málið:
Ekki hægt að lúta lægra
„Hugsið ykkur að þegar sjálfsprottin hópur Íslendinga kemur saman á Austurvelli með íslenska fána í baráttu fyrir verndun íslenskrar tungu og menningu að þá skuli dómsmálaráðherra og fleiri þingmenn Viðreisnar tala um það sem óvinafagnað og óbragð af því að vera með íslenska fánann. Aldrei minnist ég þess að þetta fólk hafi haft athugasemdir við að fána Hamas væri veifað á útifundum og kröfugöngum. Hvað gengur eiginlega að þessu fólki?
Fyrrum forseti lýðveldisins talaði um gjá milli þings og þjóðar. Sú gjá virðist nú vera ægidjúp og lítt brúanleg þegar í ljós kemur að hópurinn á Austurvelli með íslensku fánana talar fyrir munn yfir 90% þjóðarinnar skv. skoðanakönnun á Vísi og yfir 80% þjóðarinnar skv. skoðanakönnun Maskínu í Morgunblaðinu í gær.
En nú er hamast að venjulegum Íslendingum sem vilja eiga land sitt og menningu og það úthrópað m.a. af dómsmálaráðherra fyrir jákvæðar skoðanir og bera íslenska fánann. Er hægt að lúta lægra.
Ég reikna ekki með að þetta umkomulausa ráðherra og þingmannalið horfi á landsleik Íslands og Frakklands og því síður veifi íslenska fánanum eða hrópi áfram Ísland á Laugardalsvellinum. Það væri nú heldur betur rasisminn.“