Hvað eru lögmenn Stjórnarráðsins að hugsa?

Eins og Þjóðólfur hefur sagt frá, þá er búið að kæra þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst til úrskurðarnefndar kosningamála. Kærandi er Logi Kjartansson lögmaður fyrir hönd Þrastar Jónssonar, Sigfúsar Aðalsteinssonar og fleiri kjósenda og íslenskra ríkisborgara. Aðalkrafa kærenda er að þjóðaratkvæðagreiðslan verði lýst ógild en til vara að úrskurðarnefndin viðurkenni ólögmæti hennar og þar með ógildanleika.

Í kærunni segir:

„Kröfur kærenda eru aðallega þær að kosningar þær sem fólgnar eru í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst 2026 verði að lögum lýstar ógildar en til vara að viðurkennt verði ólögmæti þeirra og þar með ógildanleiki.“

Tveir mánuðir eru liðnir síðan Logi Kjartansson gerði grein fyrir lagalegum grundvelli málsins í Morgunblaðinu. Síðan þá hefur ríkt ærandi þögn löglærðra manna í landinu. Aðallega lögmanna Stjórnarráðsins.

Hvað veldur?

Ef málstaðurinn væri svo algjörlega galinn og gripinn úr lausu lofti, hvers vegna hafa þá stuðningslögmenn ríkisstjórnarinnar, einhver þeirra, ekki komið fram á sjónarsviðið og andmælt málflutningi Loga Kjartanssonar? Enginn hefur lyft litlafingri.

Hvar er lagadeild Háskóla Íslands? Ekki orð frá því menntasetri.

Getur verið að lögmannastéttin á Íslandi sé sammála Loga Kjartanssyni en þori bara ekki að segja það upphátt af ótta við vinnu- og tekjumissi?

Ef svo er, þá er siðrofið algjört milli almennings og lögaðilans.

Önnur hlið málsins er að einstaklingar eins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem var innblönduð í siðlaus viðskipti í bankahruninu, þegar hún og manni hennar tókst að töfra burtu fleiri hundruð milljón króna lán. Hvernig stendur á því að einstaklingar sem sýna svo fordæmalaust siðleysi gagnvart almenningi og sjálfum sér sé leyft að stofna stjórnmálaflokk og komast í ríkisstjórn sem ráðherra? Eru engar siðferðiskröfur gerðar til stjórnmálamanna á Íslandi lengur?

Núverandi ríkisstjórn er að fremja siðlausan glæp gegn þjóðinni með blekkingu um að ekki sé verið að kjósa um aðild að ESB. Samningar Þorgerðar við ESB eru lokaðir í skúffu sem ekki einu sinni þingmenn fá að sjá.

Kosningarnar eru teknar fram í skyndi og vandlega gætt að engir þingfundir eigi sér stað svo þingmenn geti rætt málið fyrir kosningar vegna sumarfría.

Með framferði sínu hefur ríkisstjórnin tekið þingræðið og lýðræðið í gíslingu.

Hvar eruð þið lögmenn þessa lands? Hafið þið engan manndóm lengur? Eða eruð þið eins og Gollum sem eltið hringinn sem tengir hina gullhringina saman? Ætla allir að fá vinnu hjá ESB?

Vonandi kemur úrskurðarnefnd kosningamála þjóðinni til aðstoðar og bjargar henni frá þeim hroðvirknisvinnubrögðum sem viðhöfð eru í Stjórnarráði Íslands þessa dagana.