Hvað er Zíonismi?

Hér er smá kennslustund fyrir þá sem vilja vita hvað Zíonismi er. Ýmsir nota orðið án þess að skilja merkingu þess og útmála „Zíónismann” sem eitthvert óargadýr á jörðu. En eins og þulurinn segir, þá stendur Zíonisminn fyrir sjálfstætt ríki gyðinga, heimili þeirra á jörðu, Ísrael.

And-Zíonistar vilja afmá ríki gyðinga, því þeir hata gyðinga svo mikið. Þess vegna getur ekki tveggja ríkja kerfið með Ísrael og Palestínu virkað á meðan Palestínu er stjórnað af hryðjuverkasveitum sem hafa aðeins einn tilgang: að útrýma Ísrael.

Í myndskeiðinu hér að neðan er mikill fróðleikur um uppruna og þróun gyðinga, hvernig þeim var tvístrað um allan heim og hvernig þeir hafa alltaf leitað upprunans í fyrirheitna landinu Ísrael. Ef ekki væri fyrir gyðingahatrið, þá myndi friður ríkja milli Ísraels og nágrannalandanna.

Fara efst á síðu