Hrein illmennska að baki loftslagskenningunni um „stiknandi jörð“

Ástralski stjórnmálamaðurinn Malcolm Roberts segir í viðtali við Infowars, að mjög illmennskan sé að baki kenningunni um hamfarahlýnun.

Ástralski öldungadeildarþingmaðurinn Malcolm Roberts sem sjálfur er lærður verkfræðingur heldur því fram, að loftslagsmálin séu fullkomin svikamylla til þess að breyta venjulegu fólki í fátæka þræla elítunnar sem seilist eftir völdum og peningum skattgreiðenda.

Kenning Sameinuðu þjóðanna um hamfarahlýnun er illmennskan ein

Roberts segir að koltvísýringur geti ekki gert það sem loftslagstrúboðarnir halda fram.

„Plánetan sýður! Koltvísýringur getur ekki soðið plánetuna. Hann er nauðsynlegur áburður náttúrunnar fyrir plöntur. Svo þetta er kjaftæði. Ég skoðaði málið og komst að því, að „vísindi“ þeirra eru algjört rugl. Það eru engin vísindi til sem styðja þetta.“

Síðan rannsakaði Roberts hverjir eru leiðandi í því að dreifa þessu rugli um loftslagið: Sameinuðu þjóðirnar og alþjóðasinnarnir. Roberts heldur áfram:

„Ég áttaði mig á því að þetta er allt saman tilbúningur. Þetta snýst um það sama og alþjóðasinnar eru að fást við alls staðar. Koma á eftirliti og eignatilfærslu. Þetta fólk leitast við að taka yfir stjórnartaumana og flytja auð til sín. Frá okkur til þeirra. Þeir vilja gera okkur að þjónustufólki.“

Verið er að koma á alþjóðlegum sósíalisma

Roberts segir að alþjóðasinnarnir hafi sjálfir viðurkennt þetta:

„Við þurfum ekkert að búa þetta til. Þeir hafa viðurkennt að dagskrá þeirra sé ný heimsskipan og ný efnahagsleg skipan. Verið er að afiðnvæða Vesturlönd og koma á alþjóðlegum sósíalisma.“

Það er „dagskrá illmennskunnar“ sem er á bak við tjöldin:

„Þeir vilja að við hötum okkur sjálf. Þeir vilja að við hötum hvert annað. Þeir vilja skapa sundrungu. Þeir vilja að hræðslan ráði ríkjum. Við sáum þetta í Covid: hræðslu, einangrun og aðskilnað.“

„Þeir vilja fá okkur aftur í myrkur hellanna. Svo ómannúðlegt er þetta fólk. En sjálfir vilja þeir eiga hið góða líf og við eigum að vera þjónar þeirra. Þetta eru þeirra eigin orð. Þetta segja þeir okkur með sínum eigin orðum.“

Hér að neðan er fyrst bútur úr viðtalinu og þar fyrir neðan allt viðtalið hjá Infowars:

Fara efst á síðu