Hnattræningjarnir vilja ná valdi yfir mannslíkamanum: „Sýnum andspyrnu“

Globalistarnir eru að ræna löndum af bændum. Valdaelítan á Vesturlöndum rústar tjáningarfrelsinu. Mannkynið á ekki einu sinni lengur að hafa völd yfir sínum eigin líkama né heilsu. Lars Bern segir þetta í nýjum þætti á sænska SwebbTV. Hann ætlar að skrifa nýja bók um „valdið yfir heilsunni.”

Lars Bern segir frá því meðal annars að hann ætli að skrifa aðra bók:

„Ég ætla að skrifa eina bók að lokum. Hún verður um vald yfir heilsu okkar. Valdið yfir heilsunni. Hún mun að verulegu leyti fjalla um þau mjög svo strerku fjárhagslegu öfl sem eru að reyna að taka völd yfir líkama okkar og eigin heilsu.”

Þetta kom afar skýrt fram í „faraldrinum.“

Verðum að veita andspyrnu

„Ég mun reyna, áður en það verður of seint, að skrifa þá bók.”

Í nýju bókinni mun Lars Bern fara að hluta til í sömu mál og voru í fyrri bók hans: „Corona and the Metabolic Pandemic“:

Ég mun fjalla um margt af því sem var í fyrri bókinni, segir hann. En umfram allt ætla ég að benda á þessi valdamál, hvernig mjög miklir hagsmunir reyna að þröngva sér upp á okkur og gera það að verkum að við höfum ekki vald yfir eigin líkama. Og ég mun líka þróa það sem gerðist á sviði næringar. Í bókinni minni legg ég áherslu á sykur sem stærstu ógnina við efnaskiptaheilbrigði. Sykur og kolvetni. Í dag hallast ég meira að því að þessar hreinsuðu fræolíur séu enn stærra vandamál. Ég mun skrifa mikið um það.

Má ekki borða kjöt vegna loftslagsfasismans

„Þú mátt ekki borða kjöt vegna loftslagsfasisma. Það hollasta sem þú getur borðað er grasfóðrað kjöt. Reyndu að kaupa villt kjöt ef það er mögulegt.”

Lars Bern bendir á hversu „gífurlega gagn“ kjötið gerir:

„Rautt kjöt er stútfullt af næringarefnum sem þú finnur hvergi annars staðar. Það var þegar menn fóru að borða dýr sem heilinn okkar þróaðist.”

Hlýða má á viðtalið hér að neðan (á sænsku):

Fara efst á síðu