Hjartalæknirinn: „Ég hef aldrei séð neitt jafn skaðlegt mannslíkamanum“

(Mynd úr safni © Frankie Fouganthin CC 4.0)

Að sögn hjartalæknisins Peter McCullough, þá hefur hann „aldrei séð neitt jafn skaðlegt mannslíkamanum“ og það sem hin svokölluðu Covid-bóluefni framleiða.

Peter McCullough var með í þættinum „Propaganda Exposed“ og fjallar þar um Covid „bóluefnið“ og toppprótein þess, sem sprauturnar fjöldaframleiða í líkamanum (sjá myndskeið að neðan).

„Sem læknir hef ég aldrei séð neitt jafn skaðlegt fyrir mannslíkamann. Það fer inn í heilann. Það fer inn í hjartað. Það veldur heila- og hjartaskemmdum. Það kemst inn í beinmerg. Það örvar mótefni til að ráðast á blóðflögur og aðrar frumur líkamans. Það veldur blóðstorknun og skemmdum á æðum á þann hátt sem við höfum aldrei séð áður. Sem við höfum aldrei nokkurn tíman séð!“


Enn fremur vísar hann til rannsókna sem hann segir benda til þess að sprauturnar valdi krabbameini.

„Hvenær höfum við fengið prótein sem í raun og veru skaðar heilann, skemmir hjartað, beinmerginn, ónæmiskerfið, veldur blóðstorknun og getur hugsanlega valdið krabbameini – í einu próteini?“


„Þetta er vopn. Samkvæmt ströngustu hernaðarskilgreiningu er um lífvopn að ræða.“

Fara efst á síðu