Hinsegin bókabúð í San Francisco bannar Harry Potter bækur J.K.Rowling

Hvað er eiginlega að gerast hjá vissum hluta hinsegin fólks? Núna hefur búð í San Fransisco bannað allar bækur rithöfundarins J.K. Rowling vegna þess að hún hefur stofnað sjóð til styrktar konum og kvennabaráttu í Bretlandi og á Írlandi. Er það aðallega gegn ágengni karla sem segjast vera konur og gera kröfur um aðgengi að salernum og búningsherbergjum kvenna á opinberum stöðum. Vonandi frétta Samtökin 78 ekki af þessu banni, því þá mega íslenskar bókabúðir ef til vill eiga von á skipun um að fjarlægja bækur J.K. Rowling af bókalistum sínum.

Eigendur búðarinnar skilgreina sig sem hinsegin bóksölu en banna ævintýrasögur töframannsins Harry Potter vegna þess að höfundurinn segir að kynin séu aðeins tvö: karl og kona. Það staðfesti einmitt Hæstiréttur Bretlands nýlega sem varð afgerandi skref í varnarbaráttu kvenna að fá að halda sinni stöðu á opinberum salernum til dæmis.

Eigendur Booksmith bókabúðarinnar virðast hafa farið á hliðina vegna yfirlýsingu Rowlings í síðasta mánuði um að hún hefði stofnað sjóð með eigin framlögum í kvennabaráttunni. Margir vildu styðja og senda peninga í sjóðinn en Rowling hafnaði því og sagði þeim að beina peningum til annarra kvennréttindasamtaka:

„Ég skoðaði alla möguleika og einkasjóður er skilvirkasta og einfaldasta leiðin fyrir mig til að gera þetta. Margir bjóða sig fram til að leggja sitt af mörkum, sem ég kann virkilega að meta, en það eru mörg önnur kvenréttindasamtök sem gætu notað peningana, svo gefið þá til þeirra en ekki til mín!“

Í yfirlýsingu bókabúðarinnar má lesa eftirfarandi:

„Ertu að leita að Harry Potter? Í maí 2025 lofaði rithöfundurinn J.K. Rowling opinberlega að nota einkaauð sinn úr Harry Potter bókaflokknum til að þróa „J.K. Rowling kvennasjóðinn,“ samtök sem helga sig því að afnema réttindi transfólks „á vinnustað, í opinberu lífi og í vernduðum rýmum kvenna.

Með þessari tilkynningu höfum við ákveðið að hætta að selja bækur hennar. Við vitum ekki nákvæmlega hvað „kvennasjóðurinn“ hennar mun fela í sér, en við vitum að við ætlum ekki að vera hluti af honum….Gleðilegan lestur, samstaða að eilífu.“

Á heimasíðu kvennasjóðs J.K. Rowling má lesa eftirfarandi:

„J.K. Rowling kvennasjóðurinn (JKRWF) býður upp á lögfræðiaðstoð fyrir einstaklinga og samtök sem berjast fyrir því að varðveita kynbundin réttindi kvenna á vinnustað, í opinberu lífi og í vernduðum rýmum fyrir konur. Hann veitir konum leiðir og sjálfstraust til að höfða mál sem skapa lagaleg fordæmi, knýja fram stefnubreytingar og leggja jákvætt af mörkum til lífs kvenna í framtíðinni.

  • Við fjármögnum lögfræðiaðstoð fyrir konur og samtök sem:
  • Hafa misst lífsviðurværi sitt eða standa frammi fyrir dómstólum vegna yfirlýstrar skoðana sinna
  • Eru neyddar til að fylgja órökstuddum aðlögunarreglum varðandi rými og þjónustu fyrir bæði kynin, eða klúbba og viðburði sem eru eingöngu fyrir konur
  • Eru að ögra löggjöf sem tekur burt frelsi eða vernd sem konur eiga rétt á
  • Hafa ekki fullnægjandi leiðir til að höfða mál fyrir dómstólum eða verja sig“

Fara efst á síðu