Hin lögleyfða spilling búrókratanna í Brussel

Andri Sigurðusson vekur athygli á ástæðunni fyrir stjórnmálamenn á Íslandi að ganga með í ESB. Hann vitnar í Yanis Varoufakis fyrrverandi fjármálaráðherra Grikklands sem þekkir spillingu innan sambandsins á eigin skinni: „Algjört brjálæði fyrir Ísland að ganga í ESB” segir Varoufakis (sjá hlaðvarp að neðan):

“Mér fannst það hefði verið algjört brjálæði að greiða atkvæði með því að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu — eða undirgefni Íslands við Brussel, eins og ég myndi kalla það. Það hefði verið algjört brjálæði.

Sjávarútvegurinn er ekkert aukaatriði í þessari umræðu. Hann er þungamiðjan. Og það leikur enginn vafi á því að Brussel myndi í raun vilja sölsa undir sig 80 prósent af fiskinum sem gerir íslenskan sjávarútveg að svo arðbærri atvinnugrein.

Spurningin er þessi: Hvers vegna studdu svona margir íslenskir stjórnmálamenn, þar á meðal forsætisráðherrann, inngöngu í Evrópusambandið af svo miklum ákafa? Svar mitt, Wolfgang, er að þetta sé, svo ég orði það mildilega, lögleg spilling.

Um leið og landið gengur í ESB opnast nefnilega fjöldi vel launaðra starfa í Brussel fyrir fyrrverandi ráðherra og forsætisráðherra, embættismenn og ýmsa fulltrúa borgarastéttarinnar og valdastéttarinnar. Evrópuþingmenn fá 15.000 evrur útborgaðar á mánuði, og þar ofan á bætast alls kyns kostnaðargreiðslur og hlunnindi. Heil klíka embættismanna flytur sig úr höfuðborg heimalandsins til Brussel, enda þarf að manna allar þessar nefndir og svo framvegis.

Þarna liggur ástæðan. Það voru engin skynsamleg rök fyrir því að Ísland gengi í Evrópusambandið, önnur en það sem ég kalla lögleidda spillingu. Þetta er atvinnusköpun að hætti Keynes fyrir hálaunaða embættismenn. Það er umfram allt það sem Brussel snýst um.”