Í gær bárust þau tíðindi að 30 manna hópur Þjóðfrelsis lagði fram kæru til ríkislögreglustjórans á hendur Þorgerði Katrínu Gunnarsóttur, utanríkisráðherra, fyrir landráð. Er það vegna frumvarps ráðherrans um Bókun 35, sem Miðflokkurinn bremsar tímabundið á þröskuldi hraðaafgreiðslu Alþingis en með frumvarpinu reynir ríkisstjórnin eins og sú fyrri að lauma þjóðinni bakdyramegin inn í Evrópusambandið. Lögmaður Þjóðfrelsis í málinu er Arnar Þór Jónsson sem er þjóðinni kunnur sem helsti talsmaður sjálfstæðisbaráttu nútímans gegn ásælni ESB til yfirráða á Íslandi.
Þjóðfrelsi skall hafa þakkir fyrir bæði hugrekkið að láta reyna á málið og jafnframt þá staðföstu sannfæringu, að stjórnarskrá lýðveldisins séu stjórnlög landsins sem öllum ber skylda til að fara eftir, hvort sem þeir eru þingmenn, ráðherrar, dómarar eða aðrir. Almenningur á að geta treyst þingmönnum sem sveirja eið að stjórnarskránni, að þeir fari eftir lögum. Evrópusambandið hefur breyst og vill drottna sem miðstýrt sambandsríki álfunnar og þvinga Ísland, Noreg, Færeyjar og Grænland inn í sambandið. Aukinn þrýstingur ESB á lagaheimild frá Íslandi um að lög ESB séu æðri stjórnarskrá Íslands er augljós. Eins og Arnar Þór Jónsson lögmaður Þjóðfrelsis hefur áður sagt og skrifað, þá eru varla nokkur dæmi þess að þjóð hafi af frjálsum og fúsum vilja gefið eftir fullveldi sitt og sjálfsákvörðunarrétt til erlends valds vegna hugdettu ráðamanna sem komnir eru úr tengslum við eigin þjóð.
Forseti Íslands ætti því að veita Þjóðfrelsi ásamt lögmanninum fálkaorðu og sæma titlinum Hetjur Íslands fyrir að standa vörð um stjórnarskrána okkar á háskalegasta tímabili í sögu lýðveldisins.
Dæmalaus blekking að halda því fram að lög séu séríslensk eftir stimplun Alþingis á lögum Evrópusambandsins
Ein að aðalrökum þess hóps sem kolfallið hefur fyrir áróðri ESB er að halda því fram að Bókun 35 varði bara íslensk lög og þess vegna sé engin valdheimild afsöluð til Evrópusambandsins. Á einu augnabliki er klippt á uppruna lagasetningar ESB og þær sagðar íslenskar eftir að þýðingameistari Alþingis hefur þýtt lögin yfir á íslensku og þingheimur klappað fyrir og samþykkt lögin.
Rétt eins og að Ísland væri í samningaleik við sig sjálft og ESB hefði ekkert með málið að gera.
Það er með öllu óskiljanlegt að fullorðið fólk trúi því, að þjóðin falli fyrir slíkri augljósri brellu farandsölumannsins sem selur fólki litað vatn á flösku og segir það lækna öll mein.
Þannig er nú komið fyrir alþingismönnum okkar að meirihlutinn á þingi trúir þessu sjálfur. Þá er ekki skrýtið þótt stjórnarskráin fari halloka og lýðveldið í stærstu hættu nokkru sinni í sögunni.
Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu málsins.