Fyrir rúmu ári skrifaði ég grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni Jólasveinar Evrópusambandsins. Ástæðan var áróðursgrein Gunnars Hökmarks og Oksanen í blaðinu skömmu áður, þar sem rætt var um nauðsyn þess að Ísland kæmi sér upp eigin varnarliði. Grein þessara stríðshauka ESB grundvallaðist á bæklingi Oksanen um jólasvein í snjóstormi en þeim láðist að geta eftirfarandi í greininni sem var að finna í bæklingnum. Í kafla um varnarsamstarf Norðurlanda, Eystrasaltslandanna og Póllands, NBP (bls. 12), segir:
„Fyrir ríki utan ESB er kominn tími til að ganga í sambandið til að efla efnahagslegt og pólitískt öryggi og vera hluti af endurhervæðingu ESB. Lagt er til að Noregur og Ísland komi loksins með, ásamt því að Svíþjóð og Danmörk taki upp evruna og yfirgefi krónuna sem gjaldmiðil. Aðild að ESB er einnig á borðinu fyrir lönd á yfirráðasvæði Danmerkur sem eru fyrir utan í dag, nefnilega Færeyjar og Grænland. ESB á að tryggja að ferlið gangi hratt fyrir sig og verði auðvelt, ef áhugi er fyrir hendi.“
Hér er aðaláherslan lögð á endurhervæðingu ESB og sjávarútvegur settur skör lægra. Hin mikilvæga hernaðarlega þýðing landsins í miðju Atlantshafi er mikilvægari í augnablikinu en útfærsla á yfirráðum ESB yfir sjávarútvegi og fiskimiðum landsins.
Stríðsópin gjalla í glansandi sölum ESB í Brussel og hatrið á Bandaríkjamönnum komið í sama hjólfar og hatrið á Rússum. Í seinni heimsstyrjöldinni litu nazistar hýru auga til Íslands sem hægt væri að nota sem millilendingu fyrir þýskar sprengjuflugvélar til að taka eldsneyti á leiðinni sem fara átti til að varpa sprengjum á Bandaríkin. Bandamenn sáu og skildu hættuna og Bretar urðu fyrri til og hertóku Ísland svo landið félli ekki í hendur nazista. Síðan leystu Bandaríkjamenn Breta af hólmi.
Í dag endurómar söngur nazismans gegn Bandaríkjunum og sagt að Trump sé einkavinur Pútíns og Rússadindill vegna þess að Bandaríkjaforseti hefur gert heiðarlega tilraun til að binda endi á Úkraínustríðið. Í jólasveinaskýrslunni er Bandaríkjastjórn ásökuð um að vera leppur Rússlandsstjórnar og Kína (bls. 5) sbr.:
„Með endurkomu Donalds Trumps í Hvíta húsið vakna spurningar um skuldbindingu Bandaríkjanna við Nató og öryggi Evrópu. Í upplýsingaumhverfinu deila lykilpersónur í stjórn Trumps rússneskum áróðri og styðja hliðholl rússnesk og kínversk öfl innan ESB.“
ESB leggst gegn friði í Úkraínu og hervæðist fyrir árás á Rússland til að sigra þá, því „sigur yfir Rússlandi er nauðsynlegur fyrir öryggi Norðurlanda, Eystrarsaltslanda og Póllands, NBP“, þar með talið öryggi Íslands. Hernaðarstefna NBP er útskýrð (bls. 7):
„Hafna hvers kyns viðurkenningu á landtöku Rússlands og hafna öllum tillögum um að fella niður refsiaðgerðir gegn Rússlandi áður en rússnesk herlið yfirgefa úkraínska grund að fullu.“ Einnig: „Vinna gegn öllum áformum um að endurræsa NordStream.“
Ljóst er á þessu að ESB er horfið sem friðarverkefni og er núna orðið hernaðarbandalag sem undirbýr þriðju heimsstyrjöldina.
Það alvarlega í málinu er að íslenska ríkisstjórnin hefur skuldbundið Ísland til að fylgja þessari hernaðarstefnu ESB án þess að spyrja þing eða þjóð eða upplýsa um málið. Þátttaka ráðherra í störfum NBP ásamt fjáraustri til Úkraínu sannar undirlægjuhátt ríkisstjórnarinnar og svik við farsæla varnarmálastefnu Íslands frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar.
Hér er komin skýring á flýti ESB til að ná völdum á Íslandi, því það þjónar heimsvaldasinnuðum markmiðum sambandsins að veikja stöðu óvinar ESB númer tvö: Bandaríkjanna. Allt tal ráðherra ríkisstjórnar Íslands ber líka eftirvæntingarfullan keim eftir „góðum díl“ vegna meiri áhuga ESB á hernaðarstöðu Íslands en fiskimiðum landsins í augnablikinu.
Sá skrípaleikur sem ríkisstjórn Íslands hefur sett á svið að undirlagi ESB með atkvæðagreiðslu um eitthvað annað en inngöngu í ESB er aðeins gerður til að rugla fólk í ríminu og fá fram Já. Það er það eina sem ESB þarf að fá. Eftir það verður ekki aftur snúið og alls óvíst að nokkur seinni atkvæðagreiðsla fari fram.
Eina leiðin til að stöðva þetta er að þjóðin rísi upp líkt og í Icesave og segi svo afdráttarlaust NEI að ríkisstjórnin þori ekki að hreyfa við málinu í bráð.
