Forseti Rússlands sendi Donald Trump, forseta Bandaríkja Ameríku, hamingjuóskir í tilefni af 250 ára afmæli sjálfstæðis Bandaríkjanna 4. júlí.
Vladimir Putin:
„Undirritun Sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna markaði ekki aðeins fæðingu þjóðar yðar, heldur markaði hún einnig tímamótaviðburð í sögu heimsins.
Það var þá sem Rússland lýsti yfir ótvíræðum stuðningi sínum við nýlendubúa í Norður-Ameríku í baráttu þeirra fyrir frelsi undan breskum yfirráðum.
Á tveimur og hálfri öld hafa margir mikilvægir kaflar verið skrifaðir í sögu samskipta þjóða vorra.
Vér börðumst sem bandamenn í tveimur heimsstyrjöldum og frelsuðum í sameiningu mannkynið undan ógn nazismans. Síðar höfðum vér afgerandi áhrif í mótun þess grundvallar sem lagður var að nútíma alþjóðaskipan.
Í dag bera Rússland og Bandaríkin, sem tvö stærstu kjarnorkuveldi heims, sérstaka ábyrgð á því að varðveita alþjóðlegt öryggi og stöðugleika.
Ég er sannfærður um að uppbygging jákvæðra, sanngjarnra og gagnkvæmra hagstæðra samskipta milli Moskvu og Washington þjóni ekki aðeins hagsmunum þjóða vorra, heldur einnig hagsmunum alls alþjóðasamfélagsins.
Donald, ég óska þér og ástvinum yðar góðrar heilsu, velfarnaðar og alls hins besta. Jafnframt óska ég öllum meðborgurum Bandaríkjanna hamingju og farsældar.“
