The College Fix greinir frá nýjustu klikkun fræðasamfélagsins í „verkefni við Háskólann í Minnesota til að búa til „meðferðardúkkur“ fyrir transfólk handa börnum allt niður í fjögurra ára aldur sem verður formlega sett af stað á þessu ári.“ Markviss innræting „grooming“ eða „undirbúningur barna fyrir kynferðislega misnotkun“ er áfram stórt vandamál, sérstaklega í frjálslyndum ríkjum eins og Minnesota.
Samkvæmt verkefninu eru dúkkurnar „byggðar á klínískum aðferðum sem staðfesta kynvitund“ og eiga að vera „meðferðarúrræði“ fyrir heilbrigðisstarfsfólk og kennara sem vinna með börnum á aldrinum 4–10 ára.
Á vefsíðu MyGender Dolls segir meðal annars:
„Nýja vefsíðan inniheldur aðeins takmarkaðar upplýsingar um dúkkurnar, sem eru afrakstur margra ára verkefnis kennara við Eli Coleman-stofnun Háskólans í Minnesota um kynheilbrigði og kynvitund.“
„Samkvæmt upplýsingum á síðunni líkja MyGender Dolls eftir hefðbundnum pappadúkkum og sýna teikningar af börnum á mismunandi aldri, með ólía líkamsbyggingu og mismunandi húðlit til að endurspegla „öll“ börn.“
Harðlega gagnrýnt af samtökum um heilbrigði barna
Verkefnið hefur með réttu sætt gagnrýni frá American College of Pediatricians enda um sjúklega innrætingu transhugmyndafræði í smábörn. Markmið samtakanna er að „vernda líffræðilega heild barna gegn hugmyndafræði um kynvitund“.
Dr. Quentin Van Meter, fyrrverandi forseti samtakanna, sagði í tölvupósti til The College Fix í síðustu viku að dúkkurnar væru „ekkert annað en tæki til grooming (undirbúning barna fyrir kynferðislega misnotkun)“ og „ættu engan stað í siðferðilega ábyrgri læknisþjónustu“.
Van Meter segist hneykslaður á því að jafnvel börn á aldrinum 3–7 ára séu útsett fyrir þennan áróður og telur að það geti valdið því að börn verði „ringluð“ og „viðkvæm fyrir kvíða“ sem telja má varlega orðað. Van Meter segir jafnframt að „skýr orsök kynama sé tilfinningalegt áfall sem stafi af hugmyndafræðilega drifnum foreldrum, kennurum eða ráðgjöfum.“
Einnig er rætt um hvort verkefnið sé kostað af skattfé almennings en forstöðumaður verkefnisins við Háskólann í Minnesota heldur því fram að MyGender Dolls-verkefnið hafi „eingöngu verið fjármagnað með einkaframlögum til þess verkefnis“.
Þetta er því miður ekki í fyrsta sinn „transhugmyndafræðin“ birtist við Háskólann í Minnesota:
„Í færslu á Instagram árið 2024 bauð National Center for Gender Health við háskólann einnig „transbörnum og börnum með fjölbreytta kynvitund á aldrinum 5 til 10 ára“ greiðslu fyrir að leika sér með dúkkurnar.“
Ekki furða þótt sumum finnist verkefnið bæði siðlaust og óviðeigandi, og krefjast þess það verði tafarlaust lagt niður af stofnun sem segist sinna „æðri menntun“.
BREAKING: @UMNews is rolling out a project called “MyGender Dolls” as a “therapeutic” tool for kids to express their “gender identity.”
— Libs of TikTok (@libsoftiktok) December 2, 2024
The project allows kids to swap different g*nitals and internal organs with their dolls, as well as pick what clothes they wear.
They want to… pic.twitter.com/HCY1PQeS3k
SOURCE: https://t.co/w1yyGMW62E
— Libs of TikTok (@libsoftiktok) December 2, 2024
