Háskóli Íslands bannar umræðu um ESB í hátíðarsal

Býr til falsástæður til að meina fund með dr. Carl Baudenbacher

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus og Ragnar Árnason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands hafa sent rektor háskólans, Silju Báru Ómarsdóttur, eftirfarandi bréf vegna riftun háskólans á leigusamningi um hátíðarsal háskólans vegna fundar dr. Carl Baudenbacher, fv. forseta EFTA-dómstólsins núna á mánudag. Fundarstjóri er Ólafur Ragnar Grímsson fv. forseti. Salurinn var pantaður af Rannsóknarsetri um stjórnmál og efnahagsmál sem Hannes H. Gissurarson veitir forstöðu en Ragnar Árnason sá um pöntun salarins í júlí s.l. Allt í einu segir háskólinn að það hafi verið hreyfingin Áfram Ísland sem hafi pantað salinn, þótt enginn slíkur samningur liggur fyrir.

Greinilega eru stjórnendur háskólans svo bundnir af ESB og styrkjum þaðan, að engin sem kemur með aðrar skoðanir en þóknast valdhöfum ESB má halda fundi í háskólanum. Málin eru komin í óefni og í reynd um að ræða skerðingu á akademísku frelsi og alvarlega skerðingu á almennu málfrelsi = ritskoðun. Er þessi framkoma Háskóla Íslands til mikillar hneisu að reyna að stöðva fund um mikilvæg málefni á þennan vægast sagt ósmekklega hátt. Þjóðólfur styður kröfu prófessoranna um að Háskóli Íslands standi skilyrðislaust við gerðan samning eins og skýrt er í bréfi þeirra Hannesar Hólmsteins og Ragnars Árnasonar hér að neðan:

Bréf Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og Ragnars Árnasonar til Silju Báru Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands:

Virðulegi rektor.

Fyrr í sumar kom í ljós, að dr. Carl Baudenbacher, einn virtasti fræðimaður heims um Evrópurétt, fyrrverandi prófessor í Háskólanum í St. Gallen í Sviss og gistiprófessor við fjölmarga háskóla, þar á meðal Háskólann í Texas, Háskólann í Genf og Háskóla Íslands, og fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, væri fáanlegur til að halda fræðilegan fyrirlestur í Háskóla Íslands um Ísland, Evrópska efnahagssvæðið og Evrópusambandið hinn 10. ágúst 2026, eins og hann hefur gert í fjölmörgum háskólum.

Ragnar Árnason, prófessor emeritus, pantaði 15. júlí hátíðarsal Háskólans fyrir þennan fræðilega fyrirlestur kl. 15.30 mánudaginn 10. ágúst. Ekki var þá frágengið, hvaða stofnanir Háskólans myndu standa að fyrirlestrinum eins og fram kom í pöntun Ragnars, sem nefndi þar aðeins sig og samstarfsfólk sitt sem aðstandendur. Þjónustuborð á Háskólatorgi staðfesti þann 16. júlí afnotin af hátíðarsalnum umræddan dag og stund fyrir „Fyrirlestur Carl Baudenbacher“ án frekari skilyrða.

Ekki þarf að fjölyrða um, hversu mikill fengur er að fræðilegum fyrirlestri dr. Baudenbachers um Evrópurétt, sem hann er allra manna kunnugastur, enda kenndi hann þau fræði, þegar hann var gistiprófessor í Háskóla Íslands. Dr. Baudenbacher hefur gefið út hátt í 40 bækur um fræðisvið sitt. Hann er sérstaklega kunnugur Íslandi frá því, að hann var dómsforseti EFTA-dómstólsins, þegar ágreiningsefni Íslands við Bretland og Holland í svokölluðu Icesave-máli voru borin undir dómstólinn. Felldi dómstóllinn úrskurð Íslandi í vil með rækilegum lögfræðilegum rökum og leysti með því úr erfiðu milliríkjamáli, sem hafði kostað tvær þjóðaratkvæðagreiðslur og harðar deilur.

Varð að ráði, að Rannsóknarsetur um stjórnmál og efnahagsmál, sem vistað er í Félagsvísindastofnun og hefur stundað rannsóknir á Evrópumálum, þar á með Icesave-málinu, stæði að hinum fræðilega fyrirlestri dr. Carls Baudenbachers. Er forstöðumaður rannsókmarsetursins Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus. Hann sneri sér til forstöðumanns Félagsvísindastofnunar til að spyrja, hvort hann mætti nota merki (logo) Háskólans í auglýsingu. Var það leyfi góðfúslega veitt bréflega 5. ágúst (þótt það væri síðan ekki notað).

Hinn 6. ágúst birtist auglýsing um hinn fræðilega fyrirlestur dr. Baudenbachers í Morgunblaðinu. Var hún í nafni Rannsóknarseturs um stjórnmál og efnahagsmál, en jafnframt birtust í auglýsingunni merki tveggja aðila, sem vildu vekja athygli á fyrirlestri dr. Baudenbachers, Áfram Ísland og Almenna bókafélagið, en það gefur út fræðirit, sem dr. Baudenbacher og samstarfskona hans, dr. Laura M. Baudenbacher, sem er einnig sérfræðingur í Evrópurétti, hafa ritað um Ísland, EES og ESB.

Það hefur oft tíðkast, að samtök og aðilar utan Háskólans hafi átt samstarf við stofnanir innan Háskólans um fundi og tekið að sér að vekja athygli á þeim. Aldrei hefur okkur vitanlega verið amast við því. Má nefna auglýsingar í Morgunblaðinu 16. febrúar 2013 um fyrirlestur í hátíðarsal, sem Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála stóð að; í Morgunblaðinu 8. október 2015 um fyrirlestur í hátíðarsal, sem félagsvísindadeild stóð að: og í Morgunblaðinu 30. september 2017 um málstofu um íslenska þjóðveldið, sem Hagfræðideild, Lögfræðideild og Sagnfræði- og heimspekideild stóðu að.

Sama dag og auglýsingin birtist, 6. ágúst, höfðu tveir starfsmenn Háskólans samband við Ragnar Árnason og sögðu, að ekki kæmi til greina að standa við leigusamninginn um afnot af hátíðarsal Háskólans, því að þetta væri stjórnmálafundur, sem samtökin Áfram Ísland og Almenna bókafélagið héldu. Hefði það ekki verið upplýst, þegar salurinn var pantaður.

Þetta er alrangt. Þessi misskilningur er óskiljanlegur. Það er Rannsóknarsetur um stjórnmál og efnahagsmál í Félagsvísindastofnun, sem stendur að fundinum, ekki Áfram Ísland eða Almenna bókafélagið. Mörg dæmi eru um að áhugaðilar hafi auglýst upp á sitt einsdæmi fyrirlestra og aðra atburði sem fram hafa farið í HÍ. Ragnar gaf engar rangar upplýsingar, þegar hann pantaði salinn, enda var þá ekki ljóst, hvaða stofnun innan Háskólans myndi standa að fyrirlestrinum, og þetta er fræðilegur fyrirlestur eins helsta sérfræðings heims um Evrópumál, eins og Háskólinn hefur raunar viðurkennt með því að fá hann sem gistiprófessor til að kenna um Evrópumál.

Hefur dr. Baudenbacher einnig verið heiðursgestur á samkomum Dómarafélagsins, Lögmannafélagsins og Félags lögfræðinga. Flutti hann fyrirlestur í hátíðarsal Háskóla Íslands í samstarfi við Lögmannafélagið og Dómarafélagið í október 2017.

Við teljum það væntanlega óafvitandi en í reynd atlögu að fræðilegu (akademísku) frelsi og hlutverki og markmiðum Háskóla Íslands, ef þessum heimskunna fræðimanni er neitað um að flytja fræðilegan fyrirlestur í Háskóla Íslands á þeim vettvangi, sem hér um ræðir, af því að einhverjir kunna að vera ósáttir við hina fræðilega nálgun hans eða við þá aðila, sem athygli vilja vekja á hinum fræðilega fyrirlestri hans.

Í þessu sambandi má minna á, að breski þingmaðurinn David Miliband hélt erindi í hátíðarsal Háskólans 26. september 2012 , þar sem hann fjallaði á mjög pólitískan hátt um Evrópusambandið og lagði að Íslendingum að ganga í það. Engar athugasemdir voru gerðar við þann viðburð. Var Miliband þó utanríkisráðherra þeirrar ríkisstjórnar Bretlands, sem sett hafði hryðjuverkalög á Ísland árið 2008. Nú er hins vegar verið að bjóða heimskunnum fræðimanni, ekki stjórnmálamanni eins og Miliband, að halda í Háskóla Íslands fræðilegan fyrirlestur um Evrópurétt.

Það sætir furðu, ef stjórnmálamaður, sem setti hryðjuverkalög á Ísland, fái að tala í hátíðarsal Háskóla Íslands, en ekki fræðimaður, sem hefur skrifað fjölda bóka og ritgerða um Evrópurétt og kveðið upp dómsúrskurð Íslandi í vil í erfiðri milliríkjadeilu.

Aðalatriði málsins er, að Baudenbacher mun flytja fræðilegan fyrirlestur á vegum rannsóknarseturs í Háskólanum. Skiptir engu máli í því sambandi þótt ýmsir aðilar vilja vekja athygli á fyrirlestrinum. Til að undirstrika hið fræðilega eðli fyrirlestursins er fundarstjóri á fundinum dr. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi prófessor í Háskóla Íslands og frumkvöðull í þróun félagsvísinda í Háskólanum.

Við krefjumst þess því, að Háskóli Íslands standi við leigusamning þann, sem gerður var án nokkurra skilyrða við Ragnar Árnason 15. júlí 2026, en taki ekki allt í einu upp á að ritskoða heimskunnan og virtan fræðimann vegna hugsanlegra skoðana hans eða vegna áhuga innlendra aðila á hinum fræðilega fyrirlestri hans. Þetta yrði fordæmalaust og örlagaríkt skref fyrir Háskólann. Þar eð fyrirlestur dr. Carls Baudenbachers á að vera eftir þrjá daga, hinn 10. ágúst, þá óskum við eftir tafarlausum svörum rektors. Skorum við á hana að standa við gerðan samning.

Virðingarfyllst,

Ragnar Árnason, prófessor emeritus

Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus