Hannes H. Gissurarson: Engin rússnesk áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna

Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, hafnar því að rússnesk áhrif eða tengsl við Vladimír Pútín hafi verið að baki baráttu nei-hreyfingarinnar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Evrópusambandið 29. ágúst. Í grein sinni í The Conservative segir hann rangar sögur hafa verið bornar á borð fyrir erlenda fjölmiðla í aðdraganda kosninganna.

Hannes tekur sérstaklega fyrir viðtal EUobserver við Þorvald Gylfason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands og stuðningsmann ESB-aðildar. Þar varaði Þorvaldur við því að íslenskir „oligarkar“ eða auðmenn reyndu að ná þjóðaratkvæðagreiðslunni undir sitt vald og beindi jafnframt sjónum að heimsókn svissneska lögfræðingsins Carls Baudenbachers til Íslands.

„Nei-hreyfingin hefur fengið til Íslands svissneskan lögfræðing sem vitað er að hefur starfað fyrir Pútín-stjórnina í Moskvu og er þekktur fyrir að hafa verið lögmaður rússnesks oligarka sem reyndi að komast undan refsiaðgerðum ESB eftir innrás Rússa í Úkraínu,“ hefur Hannes eftir Þorvaldi í viðtalinu.

Þorvaldur bætti síðan við: „Hann heitir Carl Baudenbacher.“

Baudenbacher hefur engin tengsl við Pútín

Hannes segir þessar fullyrðingar rangar. Hann og Ragnar Árnason, báðir prófessorar emeritus við Háskóla Íslands, hafi boðið Baudenbacher til landsins til að halda fræðilegan fyrirlestur um Evrópusambandið.

Baudenbacher, sem var forseti EFTA-dómstólsins frá 2003 til 2017, hafi ekkert þegið fyrir fyrirlesturinn og Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, sem Hannes og Ragnar starfa að, hafi greitt flug og gistingu hans. Hannes hafnar sérstaklega fullyrðingunni um tengsl Baudenbachers við Rússlandsforseta:

„Dr. Baudenbacher hefur nákvæmlega engin tengsl við Vladimír Pútín.“

Hannes skýrir jafnframt hvernig Baudenbacher tengist máli íslenska fyrirtækisins Vélfags. Fyrirtækið hafi sætt refsiaðgerðum vegna meintra tengsla við rússneska kaupsýslumanninn Vitaly Orlov en mótmæli þeim og reki málið gagnvart Eftirlitsstofnun EFTA. Að beiðni íslensks lögmanns fyrirtækisins og með samþykki íslenska utanríkisráðuneytisins hafi Baudenbacher tekið að sér lögfræðilega ráðgjöf þess.

„Ég hef enga hugmynd um efnislega hlið málsins, en þetta fyrirtæki á vissulega rétt á lögfræðilegri fyrirsvaran,“ skrifar Hannes og vísar til réttarins til réttlátrar málsmeðferðar samkvæmt 6. grein Mannréttindasáttmála Evrópu.

Hafnar því að Ísland sé „oligarkaveldi“

Hannes fjallar einnig um þá fullyrðingu Þorvaldar í EUobserver að Ísland hafi þróast í átt að oligarkaveldi þar sem eigendur stærstu sjávarútvegsfyrirtækjanna fari með mikil völd. Hannes hafnar þeirri lýsingu og vísar meðal annars til tekjudreifingar, lífskjara, lífeyriskerfis og langrar lýðræðishefðar Íslands.

„Maður ætti ekki von á slíkri niðurstöðu í oligarkaveldi,“ skrifar hann og bendir jafnframt á stöðu Íslands á Human Development Index Sameinuðu þjóðanna.

Hannes viðurkennir að stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins séu efnahagslega sterk en segir það ekki jafngilda pólitískum völdum. Aðeins lítill hluti tekna stjórnmálaflokka komi frá þessum fyrirtækjum, að hans sögn.

Hann snýr síðan gagnrýninni við og heldur því fram að ESB-sinnaður „mjúkur vinstrivængur“, sem hann telur Þorvald tilheyra, hafi sterk ítök innan ríkisfjölmiðilsins og háskólanna. Hannes segir að þessi staða hafi verið nýtt í kosningabaráttunni til stuðnings já-hreyfingunni. Hann segir jafnframt að já-hreyfingin hafi varið að minnsta kosti jafn miklu fé til auglýsinga og nei-hreyfingin.

Grein Hannesar ber fyrirsögnina „Icelandic Referendum: No Russian Influence“ og birtist í The Conservative 2. september.