Hannan hvetur Íslendinga til að hafna ESB-viðræðum: „Stórbrotin sjálfsblekking“

Breski lávarðurinn og fyrrverandi Evrópuþingmaðurinn Daniel Hannan hvetur Íslendinga eindregið til að hafna áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Hann segir Ísland þegar njóta flestra helstu kosta evrópska innri markaðarins án þess að þurfa að taka á sig þær skuldbindingar sem fullri aðild fylgja. Morgunblaðið greindi frá.

Hannan, sem sat á Evrópuþinginu í rúma tvo áratugi, fjallar um þjóðaratkvæðagreiðsluna í grein í The Telegraph. Hann segir hugmyndina um að Ísland gangi í ESB sérkennilega í ljósi þess að landsframleiðsla á mann sé mun meiri hér en að meðaltali innan sambandsins. Ísland yrði því að hans mati nettógreiðandi í sameiginlega sjóði ESB. Hann vísar meðal annars til ummæla embættismanns í Brussel, sem Politico hefur eftir, um að hentugt gæti verið ef Ísland og Svartfjallaland gengju í sambandið samtímis þar sem Ísland gæti í reynd hjálpað til við að fjármagna aðild Svartfjallalands.

Ísland þegar inni á innri markaðnum

Hannan segir stöðu Íslands gjörólíka þeirri sem Bretland stóð frammi fyrir í umræðunni um Brexit. Ísland sé þegar þátttakandi á innri markaði ESB í gegnum EES-samninginn, að undanskildum mikilvægum sviðum á borð við sjávarútveg og landbúnað. Jafnframt sé Ísland utan tollabandalags ESB og geti því gert eigin fríverslunarsamninga við ríki utan sambandsins.

Hannan bendir á að Ísland hafi, meðal annars í gegnum EFTA, aðgang að fríverslunarsamningum við ríki sem ESB hafi ekki sambærilega samninga við. Að hans mati vakni því grundvallarspurning: Hvað myndi Ísland raunverulega fá með fullri aðild sem það hefur ekki þegar?

Segir fjórar meginbreytingar fylgja aðild – allar til hins verra

Hannan telur fjórar stórar breytingar verða á stöðu Íslands við inngöngu í ESB og segir þær allar Íslandi í óhag.

  • Í fyrsta lagi yrði Ísland nettógreiðandi í sjóði sambandsins. Hann vísar þar til útreikninga bandaríska hagfræðingsins Dans Mitchell um að kostnaðurinn gæti numið um 400 Bandaríkjadölum á hvern Íslending, eða rúmum 49 þúsund krónum.
  • Í öðru lagi þyrfti Ísland að yfirgefa sjálfstæða viðskiptastefnu sína og falla undir sameiginlega viðskiptastefnu ESB.
  • Í þriðja lagi myndi sameiginleg landbúnaðarstefna ESB taka við af núverandi fyrirkomulagi. Tollar gagnvart ESB-ríkjum hyrfu en Ísland tæki jafnframt upp sameiginlega ytri tolla sambandsins.
  • Í fjórða lagi – og að mati Hannans mikilvægast – færi sjávarútvegurinn undir sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB.

„Allar þessar fjórar breytingar eru augljóslega til hins verra,“ skrifar Hannan og telur sérstaklega erfitt að réttlæta breytingar á stjórn fiskveiða í landi þar sem sjávarútvegur gegnir jafn stóru efnahagslegu og menningarlegu hlutverki og á Íslandi.

Segir íslenska fiskveiðistjórnun meðal þeirrar bestu í heimi

Hannan fer fögrum orðum um íslenskan sjávarútveg og segir Íslendinga líklega hafa komið upp einhverri bestu fiskveiðistjórnun í heimi. Kvótakerfið hvetji til þess að fiskistofnar séu varðveittir og íslenskur sjávarútvegur hafi jafnframt náð miklum árangri við að fullnýta aflann. Hliðarafurðir séu meðal annars nýttar í snyrtivörur og lyfjaframleiðslu. Hann telur tengsl Íslendinga við hafið jafnframt vera mun dýpri en eingöngu efnahagsleg.

„Margir Íslendingar sem hafa aldrei stigið fæti um borð í togara hafa engu að síður tilfinningu fyrir því að ískalt vatn Norður-Atlantshafsins renni í æðum þeirra,“ skrifar hann.

„Snjöll aðferð“ að spyrja þjóðina hvort hún vilji ekki ræða við ESB í staðinn fyrir að sækja um inngöngu í ESB

Hannan beinir síðan sjónum sínum að sjálfri þjóðaratkvæðagreiðslunni. Hann telur lítinn stuðning hafa verið við beina inngöngu Íslands í ESB og segir að stuðningsmenn aðildar hafi því valið aðra leið: Í stað þess að spyrja þjóðina hvort hún vilji ganga í ESB sé spurt hvort hún vilji halda áfram viðræðum.

„Þeir hafa því fundið upp á snjallri aðferð. Í stað þess að spyrja fólk hvort það vilji ganga í sambandið spyrja þeir hvort það vilji ræða við það,“ skrifar Hannan.

Hann hafnar þeirri hugmynd að með viðræðunum geti Íslendingar einfaldlega kannað hvaða sérkjör séu í boði og síðan tekið afstöðu.

„Sjálfsblekkingin sem þarf til að halda þessari hugmynd á lofti er nokkuð stórbrotin,“ skrifar hann.

Að hans mati sé óraunhæft að ætla að ESB breyti grundvallarreglum sínum verulega fyrir ríki með innan við 0,1% af íbúafjölda sambandsins.

Telur „bara að skoða“ villandi framsetningu

Hannan telur því að raunverulegt mikilvægi þjóðaratkvæðagreiðslunnar sé meira en látið sé í veðri vaka. Samþykki þjóðarinnar myndi opna leiðina að formlegu aðildarferli og þeirri samræmingu laga og reglna sem slíku ferli fylgir. Hann telur hættu á að þegar það ferli sé komið af stað verði skriðþunginn sjálfur notaður sem rök fyrir því að ljúka aðildinni.

Ríkisstjórnin hefur á hinn bóginn lagt áherslu á að atkvæðagreiðslan 29. ágúst snúist um hvort halda skuli viðræðum áfram en ekki um endanlega inngöngu. Verði samningar um aðild síðar kláraðir á að leggja þá niðurstöðu sérstaklega fyrir þjóðina í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ósannar, óviðkomandi og mótsagnakenndar fullyrðingar um evruna

Hannan hafnar einnig röksemdum um að aðild og upptaka evru myndu leysa vandamál sem fylgja íslensku krónunni. Hann kallar þá röksemd „ósanna, óviðkomandi og mótsagnakennda“.

Hún sé ósönn vegna þess að evran sjálf búi við spennu milli ólíkra hagkerfa evrusvæðisins. Hún sé óviðkomandi vegna þess að Ísland hafi aðra möguleika ef þjóðin vilji yfirgefa krónuna. Og hún sé mótsagnakennd vegna þess að um leið og evran sé notuð sem rök fyrir aðild sé ekki lengur aðeins verið að „kanna“ möguleikana.

Spyr hvort Íslendingar falli fyrir þessu

Hannan vekur einnig athygli á því að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram að sumarlagi og telur tímasetninguna óvenjulega. Hann spyr hvort Íslendingar, sem ítrekað hafi lýst efasemdum um fulla aðild að ESB, muni líta á atkvæðagreiðsluna sem einfalda heimild til að afla frekari upplýsinga eða sjá hana sem fyrsta skrefið að fullri aðild.

Grein sinni lýkur Hannan með vísun til Þingvalla og sjálfstæðissögu Íslendinga. Hann segist margoft hafa staðið á Þingvöllum og hugsað til þess hvernig Íslendingar komu þar saman sem frjáls þjóð. Þrátt fyrir aldalanga erlenda stjórn hafi þjóðin aldrei glatað eigin sjálfsmynd.

Hannan spyr að lokum hvort Íslendingar ætli nú að fórna þeirri arfleifð til þess að ganga í Evrópusambandið – samband sem hann lýsir sem efnahagsbandalagi sem ekki vaxi.