Haítísk kona handtekin í Springfield fyrir að éta kött

Með hælisleitendum er verið að breyta Vesturlöndum í þriðja heims ríki. Ég hef bent á Íslandistan sem verðandi þriðja heims ríki framtíðarland múslima með opin landamæri og útrýmingu kristni í plógförum RÚV. Hafið þið talið palestínska fána og íslenska í mótmælum verkalýðsfélaga á Austurvelli á fimmtudag? Milli 15-20 milljónir hælisleitenda hafa komið inn ígegn um opin landamæri Ameríku með skelfilegum afleiðingum fyrir “innfæddan almenning“. Haítar hafa verið fluttir inn undir vernd Kamilu Harris. Hún hefur fagnað um 150 þúsund Haítum, meðal annars komið fyrir í bænum Springfield Ohio um sextíu þúsund manna smábæ.

Um 20 þúsund Haítar eru í Springfield. Þetta fólk hefur sett bæinn á annan endann og félagskerfið á haus. Ríkisstjóri Ohio boðar fylkislögreglua; State Troopers til Springfield sem hefur verið rústað. Haítar fá ökuskírteini án prófs án ökukunnáttu með bylgju árekstra. Það er eðlilegt að fólk leiti þangað sem það er á fullum launum í fríu húsnæði. Það er verið að flytja Haíti inn í Ameríku. Hér er 15 mínútna myndband ungrar konu, Amölu Ekpunobi sem lýsir skelfingunni. Margar umfjallanir má finna á netinu en líka falsmiðla fakt-tékka! The Federalist telur 25 ósönn ummæli Harris úr því menn telja.

Haítar fá ríflegar bætur meðan innfæddir staðarbúar lepja dauða úr skel í óðaverðbólgu Bidenomics. Á tæpum fjórum árum hefur bensín hækkað um 51%, rafmagn 32%, flugfar 23%, matvæli 22%, húsaleiga 22%, egg 47%, bílatryggingar 54%, K-12 skólafæði 66%. CNN birti skoðanakönnun á hádegi daginn eftir umræður. Spurt var: Hvort höndlar efnahagsmál betur? Fyrir kappræður töldu 53% Trump höndla þau betur, Harris 37%. Eftir kappræður Trump 55%, Harris 35%. Munið ummælin frægu 1992. “Þetta snýst um efnahaginn, bjárni. Its about the Economy, stupid.

Kettir, hundar og gæsir

Eitt heitasta umræðuefnið í kappræðunum á þriðjudagskvöld var þegar Donald Trump hélt því fram að innflytjendur væru að éta gæludýr og benti á Springfield Ohio; they are eating dogs and they are eating cats. David Muir sem stýrði kappræðum ABC kvað ummælin staðlaus; fakt-tékkaði Trump fimm sinnum, Kamilu aldrei. Þau voru þrjú gegn einum. Vandséð hvernig ABC vinnur traust aftur en sjálfsagt er hinu sataníska Disney Company sama. Þriðja heims fólk flytur inn siði sem óþekktir eru á Vesturlöndum. Kínverjar éta hunda og haítar „gæludýr“ rottur grillaðar á Manhattan. Trump varð á svipstundu helsti dýravinur Ameríku! Guli karlinn er á púlsinum. Á þessu myndbandi er haítísk kona í Springfield Ohio handtekin af staðarlögreglu fyrir að éta kött. Blaðamenn falsmiðla í einni sæng verja fjöl[ó]menningu.

Ef þú flytur inn 3ja heiminn, færðu 3ja heims ríki

Að lokum stutt video ungs manns Aldo Buttozzoni; Ef þú flytur inn 3ja heiminn, þá færðu 3ja heimsríki. Grillaðar rottur í New York. Búið ykkur undir grillveislu.

Fara efst á síðu