
Íris Erlingsdóttir skrifar:
Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði í gær að alríkisdómstólar einstakra ríkja hafi ekki heimild til útgáfu svokallaðra allsherjar-úrskurða eða lögbanna sem ná til fleiri en aðila máls.
Þetta er meiri háttar sigur fyrir Trump-stjórnina. Andstæðingar forsetans munu ekki lengur geta “dómara-verslað” – þ.e. höfðað mál gegn stjórninni í frjálslyndustu ríkjum og dómstólum landsins og krafist alls-herjar lögbanns á ákvarðanir ríkisstjórnarinnar – til að hindra stefnumál forsetans.
Dómarinn Amy Coney Barrett skrifaði álit meirihlutans, sem komst að þeirri niðurstöðu að þessi allsherjar lögbönn fari umfram það vald sem þingið hefur veitt lægri alríkisdómstólum. „Úrskurðirnir sem liggja fyrir okkur í dag endurspegla nýlega þróun: dómstólarnir gera tilkall til valds til að banna framfylgd laga eða stefnu gagnvart öllum [ekki aðeins málsaðilum]. Þessir úrskurðir — þekktir sem ‘allsherjar úrskurðir’ — fara líklega umfram það… vald sem þingið hefur veitt [hinum lægri] dómstólum,“ skrifaði Barrett.
Rétturinn úrskurðaði að lægri dómstólar geti ekki komið í veg fyrir að alríkisstjórnin framfylgi stefnumálum sínum gagnvart aðilum sem ekki eru hluti af dómsmálinu sem þeir dæma um. Þetta þýðir að allsherjar lögbönn gegn framkvæmdaskipunum Trumps eru ógild nema gagnvart aðilum máls.
Barrett gagnrýndi frjálslynda dómarann Ketanji Brown Jackson fyrir röksemdafærslu hennar í séráliti sínu: “Dómarinn Jackson velur… furðulega árásarlínu sem er hvorki tengd lagaheimildum né, í raun, neinum kenningum yfir höfuð,“ sagði Barrett. „Við munum ekki eyða tíma í rök dómarans Jackson, sem eru í andstöðu við meira en tveggja alda fordæmi, svo ekki sé minnst á stjórnarskrána sjálfa. Við tökum aðeins þetta fram: dómarinn Jackson fordæmir keisaralegt framkvæmdarvald á sama tíma og hún lofar keisaralegt dómsvald.”
„Dómarinn Jackson ætti að hlýða eigin aðvörun: ‚[A]llir, frá forsetanum og niður, eru bundnir af lögum.‘ Það á einnig við um dómara.“