Gyðingar fá menningarmiðstöð eftir 100 ár á Íslandi – Til hamingju!

Ný menningarmiðstöð gyðinga opnuð í Reykjavík. Gyðingar klippa rauða borðann á innfelldri mynd.

Vísir skrifar um að Gyðingar á Íslandi hafi fengið nýja menningarmiðstöð í gamla Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu eftir 100 ár á Íslandi. Þjóðólfur óskar gyðingum til hamingju með nýja staðinn. Á samfélagsmiðlum ólgar gyðingahatrið og þá sérstaklega eftir viðtal Vísis við Diljá Mist Einarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins sem sagði að sér væri misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar á samfélagsmiðlum. Vísir taldi hátt í fimm hundrað athugasemdir undir stökum fréttum sem mætti að stórum hluta flokka sem hatursorðræðu gagnvart gyðingum.

Gyðingahatrið kemur mjög frá óvinum Ísraels aðallega í Miðausturlöndum sem hafa það að markmiði að útrýma Ísrael „af landakortinu.“ Gyðingar eru friðelskandi fólk og hatrið á þeim er innmúrað í trú heilagastríðsmanna eins og sýndi sig í hrottafenginni árás á Ísrael, þegar yfir 1.200 manns var miskunnarlaust slátrað af blóðþyrstum gyðingahöturum Hamas 7. október 2023. Margir voru að skemmta sér á tónlistarhátíð, þegar árásin var gerð. Böðlarnir nauðguðu konum og drápu og keyrðu með nakin lík á opnum pallbílum til sýnis almenningi heimaríkisins. Það er með eindæmum að nokkur Íslendingur geti stutt þvílíkan viðbjóð.

Erna Ýr Öldudóttur ræðst að Diljá Mist fyrir að styðja gyðinga og segir hana prinsipplausa fyrir að nefna gyðingaandúð á samfélagsmiðlum. Margir mótmæla því í athugasemdum eins og til dæmis Ólafur Ísleifsson sem segir ummæli Ernu Ýr valda vonbrigðum. Gyða Magnúsdóttir skrifar:

„Helförin byrjaði með orðum, ekki morðum. Þau fylgdu í kjölfarið. Orðin þá voru lygaáróður eins og í dag. Það skiptir miklu máli að þeir sem hafa opinberan vettvang og virðingu tali gegn þeirri illsku sem gyðingaandúðin er. Þökk sé Diljá Mist.“

Guðjón D. Gunnarsson skrifar:

„Þetta er ekki heilbrigt þetta gyðingahatur á Íslandi í fjölmiðlum. Gyðingum er kennt um glæpi Hamas og Hisbolla og annarra glæpahópa á RUV og fleiri miðla.“

Aðrir taka undir gyðingahatrið og segja Diljá Mist bara vinna fyrir sérhagsmunaöfl og þá sem mjólka samfélagið, að zæónistar sjái um sína og að stór hluti sjalla séu bara „libbar að larpa sem hægrimenn.“

Vonandi er gyðingahatrið á Íslandi ekki það djúpt að leiði til trafala fyrir samkomur í menntamiðstöðinni sem þeir eiga svo sannarlega skilið. Það er gott að þingmenn sjá þetta og ræði eins og Diljá Mist þingmaður Sjálfstæðisflokksins og mættu fleiri leggja þar orð í belg.