Gunnar Gunnarsson, fyrrverandi sendiherra, telur íslensk stjórnvöld hafa nálgast aðild að Evrópusambandinu á röngum forsendum. Í grein sinni „Var aðildarumsókn Íslands að ESB byggð á misskilningi?“ í Mbl. 28. október 2026 spyr hann hvort bæði ríkisstjórnin sem stóð að viðræðunum 2010–2013 og núverandi ríkisstjórn hafi misskilið aðildarferlið og talið hægt að semja Ísland undan grundvallarskilyrðum sambandsins.
Gagnrýni Gunnars beinist að því að stjórnvöld hafi nálgast aðildarviðræðurnar sem pólitíska samningagerð um atriði sem Evrópusambandið telji þegar afgreidd í regluverki sínu.
„Getur verið að sú íslenska ríkisstjórn sem nú situr og sú ríkisstjórn sem var við völd 2010–2013 hafi misskilið hvernig staðið er að umsókn að ESB og nálgast málið frá forsendum sem ekki er boðið upp á af hálfu ESB?“ spyr Gunnar. Hann bætir við: „Töldu báðar þessar ríkisstjórnir að hægt væri að semja Ísland frá einhverjum þeirra aðildarskilyrða sem sett eru fram af hálfu ESB?“
Stjórnvöld gengu út frá því að hægt væri að semja
Kjarni gagnrýninnar er að umsóknarstjórnirnar hafi ekki áttað sig á muninum á því að semja um framkvæmd aðildar og því að breyta grundvallarreglum sambandsins fyrir Ísland.
„Íslensk stjórnvöld hafa greinilega gengið út frá því að hægt væri að semja um þau mál sem hafa með aðild að ESB að gera. Þau hafa nálgast málið á pólitískum forsendum,“ skrifar Gunnar.
Að hans mati stenst sú nálgun ekki:
„Staðreyndin er hins vegar sú að það er ekki hægt að semja um grunnstoðir ESB. Þær eru bundnar í löggjöf sem ESB semur ekki um.“
Gunnar segir sambandið ekki einu sinni bjóða upp á viðræður af því tagi. Viðfangsefnið sé hvernig og hvenær umsóknarríki verði aðilar. Semja megi um tímafresti og hugsanlega einhverjar ívilnanir, en ekki meginatriði í grunnstoðum sambandsins.
Fiskveiðistefnan stærsta hindrunin
Gunnar telur íslensk stjórnvöld hafa gert ráð fyrir að hægt væri að tryggja Íslandi áfram fullt forræði yfir fiskimiðunum þrátt fyrir aðild að sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB.
„Núverandi stjórnvöld á Íslandi töldu greinilega að hægt væri að semja sig frá sameiginlegri fiskveiðistefnu sambandsins þannig að Ísland héldi fullu forræði yfir fiskimiðum landsins,“ skrifar hann.
Hann telur slíkar væntingar ekki samræmast þeirri stefnu sem hafi gilt innan sambandsins um áratugaskeið. Að mati Gunnars myndi Ísland við þær aðstæður glata nánast öllu því forræði sem það hefur yfir eigin fiskimiðum. Hann lýsir afleiðingunum svo:
„Þetta þýðir að fórnarkostnaður Íslands við aðild að ESB yrði gífurlega hár. Hann væri í raun svo hár að ekki er hægt að ímynda sér að nokkur íslensk ríkisstjórn gæti fallist á að ganga inn í ESB á þeim forsendum.“
Gunnar hafnar því að forsendur aðildar hafi breyst þannig að nú sé hægt að komast fram hjá þeim hindrunum sem voru uppi í viðræðunum 2010–2013. Hann vísar til regluverks sambandsins, svonefnds acquis communautaire, sem skipt sé í 35 kafla í aðildarviðræðum. Þar sé meðal annars fjallað um sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna. Þótt pólitískar aðstæður geti breyst hratt gildi það ekki með sama hætti um þessi aðildarskilyrði, að hans sögn.
„Hvað þau varðar gilda nákvæmlega sömu forsendur og voru til staðar 2010–2013.“
Misskilningur eða viljaleysi til að horfast í augu við reglurnar eða mögulega meðvitaður ásetningur til að blekkja þjóðina?
Grein Gunnars vekur þannig spurningar um hvort ríkisstjórnirnar sem hafa viljað leiða Ísland inn í aðildarferlið hafi ekki skilið takmarkanir þess — eða ekki viljað horfast í augu við þær eða það versta sem er engan veginn útilokað – að þær hafa sótt um í fullri vitund um regluverkið en reynt meðviðtað að blekkja þjóðina og vekja tálsýn um Evrópusambandið.
Gunnar setur þó sjálfur fram spurningu um misskilning fremur en að fullyrða að stjórnvöld hafi vísvitandi horft fram hjá reglunum. Niðurstaða hans er engu að síður skýr: Ekki dugi að endurtaka fyrri nálgun og vænta annarrar útkomu. Hann segir að ef aðildarumsóknin verði virkjuð aftur verði að hugsa málið upp á nýtt frá grunni.
„Ef farið er í sama farið og stefnt var að af hálfu núverandi ríkisstjórnar munu sömu hindranir og áður birtast á sjóndeildarhringnum.“
Heimild: Gunnar Gunnarsson, fyrrverandi sendiherra, „Var aðildarumsókn Íslands að ESB byggð á misskilningi?“ Grein í Mbl. 28. október 2026
