Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, boðar breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið sem takmarki hækkun krónutölugjalda við 2,5 prósent. Með henni fái ríkisstjórnarflokkarnir tækifæri til að sýna í verki að þeir vilji leggja sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu. Ríkið verði að ganga á undan með góðu fordæmi þegar fyrirtæki og sveitarfélög eru hvött til að halda aftur af verðhækkunum.
Þetta kemur fram í grein Guðrúnar undir yfirskriftinni „Ríkið á að fara á undan“. Þar gagnrýnir hún efnahagsstjórn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og segir skattahækkanir og gjaldahækkanir hennar vinna gegn markmiðinu um lægri verðbólgu og vexti.
Guðrún bendir á að verðbólga mælist nú 5,9 prósent, rúmlega prósentustigi meiri en þegar ríkisstjórnin tók við. Hún hafi ekki mælst meiri síðan í ágúst 2024.
„Ríkisstjórnin er sjálf þátttakandi í þessari þróun upp á við. Hækkanir skatta og gjalda koma niður á heimilunum og fyrirtækjunum í landinu,“ skrifar hún.
Vill takmarka gjaldahækkanir við 2,5 prósent
Samkvæmt grein Guðrúnar gerir fjárlagafrumvarp næsta árs ráð fyrir 5,2 prósenta hækkun svokallaðra krónutölugjalda. Þar undir falli meðal annars áfengis-, tóbaks- og nikótíngjöld. Þá standi til að hækka kílómetragjaldið enn frekar.
Hún segir þetta gerast á sama tíma og kallað sé eftir því að fyrirtæki og opinberir aðilar takmarki verðhækkanir við 2,5 prósent, í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hyggst því leggja fram breytingartillögu þegar Alþingi kemur saman á ný á mánudag.
„Þannig leggi ríkið það sama af mörkum og það ætlast til af öðrum. Minni tekjuaukningu þarf að mæta með aðhaldi í ríkisrekstrinum,“ skrifar Guðrún.
Sveitarfélög hafi þegar tekið af skarið
Guðrún nefnir Árborg og Kópavog sem dæmi um sveitarfélög sem hafi sýnt frumkvæði. Árborg hafi ákveðið að takmarka almennar gjaldskrárhækkanir við 2,5 prósent á næsta ári. Kópavogur hafi lýst sig reiðubúinn til að miða hækkanir gjalda á barnafjölskyldur við sama mark, að því gefnu að kjarasamningar haldi og aðrir opinberir aðilar taki þátt.
Þá hafi landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkt ályktun um að halda almennum gjaldskrárhækkunum innan 2,5 prósenta árið 2027 og kallað eftir sambærilegri þátttöku ríkisins.
Ríkisstjórnin fái tækifæri til að sýna vilja í verki
Guðrún tekur undir að mikilvægt sé að ná jafnvægi í ríkisrekstrinum og stöðva skuldasöfnun. Leiðin að því markmiði skipti þó ekki síður máli. Háir vextir og hækkandi framfærslukostnaður þrengi að fjárhag fjölskyldna og dragi úr svigrúmi fyrirtækja til fjárfestinga og atvinnusköpunar.
Með breytingartillögunni fái ríkisstjórnarflokkarnir færi á að taka þátt í sameiginlegu átaki gegn verðbólgunni.
„Ríkisstjórnarflokkarnir fá þar tækifæri til að sýna í verki að þeir vilji leggja hönd á plóg. Heimilin og fyrirtækin þurfa á lægri verðbólgu og vöxtum að halda. Aðhaldið þarf að byrja hjá ríkinu. Heimilin hafa þurft að bera byrðarnar nógu lengi.“
