Ég er að leita eftir frekari upplýsingum varðandi frétt sem birtist á RÚV: „Ég get þetta ekki lengur” segir ungt kvár sem var grýtt eftir gleðigöngu Hinsegin daga” og Vísi 9. ágúst, 2026: „Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni.”
RÚV: „Kvárið Sindri „Sparkle“ Freyja Bjarnabur segir þolinmæði sína á þrotum eftir að hafa verið grýtt (rétt væri: eftir að segjast hafa verið grýtt) á leiðinni heim ásamt eiginmanni sínum eftir Gleðigöngu Hinsegin daga… Þeir hafi forðað sér á hlaupum áður en hjónunum tókst að hringja í lögreglu og því ekkert hægt að gera í málinu.”
Samkvæmt frétt Vísis: „Hópur manna kastaði grjóti í átt að grínista og leikkonu…” eins og um sé að ræða staðreynd sem hefur verið staðfest. Ábyrgur fréttamaður hefði ritað „að sögn grínista og leikkonu, kastaði hópur manna grjóti…” Atvikið hafi ekki verið í fyrsta sinn sem hún lendir í slíkri árás… Síðast fyrir tveimur vikum” veittist maður á hjólabretti „að hjónunum og sagt þau vera djöfla. Alls hafi hún fjórum sinnum lent í atvikum á Íslandi þar sem henni er ógnað eða henni beitt ofbeldi… Síðast í fyrradag hafi vinkona hennar, trans kona, orðið fyrir árás og lent á sjúkrahúsi með áverka.. ,Hún var barin niður í götuna og öskrað yfir hana ,faggi’ á meðan.”
Hvergi kemur fram að þessar árásir hafi verið kærðar til lögreglu og fréttamennirnir virðast ekki hafa gert neitt til að staðfesta sannleiksgildI frásagnanna. Frétt RÚV segir að „þeir hafi forðað sér á hlaupum áður en hjónunum tókst að hringja í lögreglu og því ekkert hægt að gera í málinu. Sindri Freyja segist oft verða fyrir aðkasti fyrir það eitt að vera trans, hán hafi fyrst verið beitt líkamlegu ofbeldi árið 2020 og oft sé öskrað á hán á götum úti.”
Getur lögreglan staðfest þessar frásagnir? Ég er ekki að segja að „kvárið” sé að segja ósatt, en jafnvel aðild í „jaðarsettum” minnihlutahópi gulltryggir ekki heilagan sannleika (greinilega voru hjónakornin símalaus og gátu því ekki tekið myndir eða video af þessari árás). Bæði RÚV og Vísir taka frásögn þessa einstaklings sem staðreynd: Fyrirsögn RÚV staðhæfir: „Fimm menn veittust að kvári…Ungt kvár… var grýtt á leið heim frá hátíðarhöldum Hinsegin daga” í stað þess að rita „að sögn ,kváris’ veittust fimm menn að…” og „segist hafa verið grýtt” eins og ábyrgur fréttamaður hefði ritað.

Ég spyr að gefnu tilefni: árið 2022 fór „frétt” eins og eldur í sinu um heimspressuna, þ.á.m. til Morgunblaðsins, af „trans konu” sem „flúði til Íslands” frá Fargo, í Norður-Dakóta vegna morð- og ofbeldishótana („skera þig á háls…”) sem vk. sagðist hafa upplifað þar. Maður skyldi ætla að manneskja sem fær ofbeldis- og morðhótanir myndi tilkynna, ef ekki kæra, þær til lögreglu, en engin þessara „frétta” sagði eitt orð um lögregluna. Ég er bara gamaldags fréttamaður, svo ég hringdi í lögregluyfirvöld í Fargo, sem staðfestu að þeim hafði aldrei borist tilkynning eða kæra um slíkar hótanir; þeir höfðu ekki hugmynd um hvað ég var að tala.
Ofbeldi er óþolandi, sama gegn hverjum er, en að fjölmiðlar skuli birta frásagnir sem þessar (í viðtengingarhætti), án þess að hafa samband við lögreglu, sem ekki er að sjá af „fréttum” RÚV og Vísis að hafi verið gert, eða gera nokkuð til að staðfesta sannleiksgildi þeirra, er ekki í almannaþágu.
Virðingarfyllst,

Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur
